Arnar áfram í Masterinn!

Arnar Davíð Jónsson komst í dag áfram í topp24 eða Masters eins og það er kallað. Arnar endaði í 22.sæti með 207 meðaltal og endaði 30 pinnum fyrir ofan 25.sætið. Fyrsta skiptið sem Íslendingur kemst í Masters á heimsmeistaramóti ungmenna. Frábær árángur

Sjá meira um úrslit í liða.

Arnar og Einar í 18.sæti

 Arnar og Einar spiluðu í dag í fyrra hollinu í tvímenningskeppninni og byrjuðu vel. Þeir lentu í smá veseni í öðrum leik útaf slæmum stigbrautum en öðru megin var mjög stamt og strákarnir snarstoppuðu en hinum megin slide-uðu þeir alltof mikið. Þeir rifu sig svo upp og voru mjög góðir í 3 til 5 leik og voru eftir þá í 5.sæti miðað við meðaltal eftir 3 holl en svo í seinasta leik fór allt í baklás og enduðu strákarnir í 18.sæti af 82 tvímenningum sem er samt sem áður frábær árángur!

Sjá meira til að skoða úrslit og stöðu mála í All-events.

Arnar og Einar spila á morgun

Tvímenningskeppnin á Heimsmeistaramóti Ungmenna hófst í dag með 2 hollum en síðan klárast hún á morgun með 2 öðrum hollum. Arnar Davíð og Einar keppa í fyrra hollinu klukkan 9 á staðartíma sem er klukkan 1 mánudagsnóttina. Þeir spila í löngum olíuburði núna sem heitir Mexíkó City og er 45 ft.

Sjá meira til að lesa um stöðu mála eftir fyrstu 2 hollin.

Skráningu liða lokið

Þá er útrunninn fresturinn til að skrá ný lið fyrir komandi tímabil og er óhætt að segja að ýmislegt hafi gengið á í sumar hjá sumum félögum. 

 Samtals verða 41 lið í deildunum í vetur og er það fjölgun um tvö frá síðasta vetri.

Akureyringar tvöfalda liðafjöldann frá síðasta vetri og koma með ný lið í bæði karla og kvenna deildirnar, Þórynjur og Víkingur.

KRingar bæta enn við sig einu liði í karladeildina, KR-E.

Öll lið ÍFH hafa verið lögð niður og gengu flestir liðsmenn þeirra inní KFR og munu áfram halda úti þrem liðum undir þeirra merkjum, KFR-ELDING, KFR-MÚRBRJÓTAR og KFR-DÖFF.

Hjá ÍRingum fækkar um eitt kvennalið, en liðsmenn ÍR-KK ákváðu að ýmist gefa ekki kost á sér áfram eða skipta um lið, sem er mjög miður fyrir kvennadeildirnar.

Skagamenn eru með óbreytt lið frá síðasta vetri þó einhverjar mannabreytingar verði óhjákvæmilega rétt eins og hjá öðrum félögum.

Í vetur verða því 6 lið í 1.deild kvenna, 5 lið í 2.deild kvenna og 10 lið í öllum þremur karladeildunum og þýðir það að spilaðar verða 20 umferðir í kvennadeildunum en 18 hjá körlunum.

Lið Þórsara munu öll taka þátt í Bikarnum og hefur það leitt til ánægjulegrar fjölgunar þar, 9 kvennalið og þarf því að draga út 2 lið hjá konum í 16 liða umferðina og 25 karlalið og þarf að draga um 18 lið hjá körlunum fyrir 32 liða umferðina. 18 lið eru skráð í Deildarbikar þannig að það verður engin yfirseta þar í ár og beðið er eftir skráningum félaga í Félagakeppnina.

Dagskrá vetrarins verður auglýst eins fljótt og hægt er eða í síðasta lagi 15. ágúst. Gert er ráð fyrir að byrja seint í september og enda um miðjan apríl.

 

Kv. Mótanefnd.

Málfundur um fyrirkomlag í deildum

Stjórn KLÍ boðar til málfundar um fyrirkomulag í deildum leiktímabilið 2014-2015.  Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 19.06.2014 kl.18:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal sal E.  Allir leikmenn í sem taka þátt í Íslandsmóti liða hjá KLÍ er velkomir á fundinn.  Á nýafstöðnu þingi sambandsins var samþykkt tillaga um að leika veturinn 2014 -2015 með þriggja manna lið í efstudeild karla og á þinginu komu fram óskir um að slíkt fyrirkomulag yrði í öðrum deildum einnig en engar tillögur samþykktar í þá veru.  Því vill stjórn KLÍ boða til þessa fundar til að kanna hug allra deildar leikmanna.

21. þing KLÍ

 Þing Keilusambands Íslands verður haldið í Íþróttamiðstöðinni, Laugardal þriðjudaginn 27. maí 2014.  Þetta þing verður það fjölmennasta hingað til en alls eru það 39 aðilar sem fara með atkvæði félaga og héraðssambanda á þinginu.

ÍR-KLS og KFR-Valkyrjur eru Íslandsmeistarar liða 2014

Keppnistímabilinu í keilu lauk í vikunni á úrslitaleikjum Íslandsmóts liða í 1. deild karla og kvenna. Nýkrýndir bikarmeistarar úr ÍR-KLS tryggðu sér Íslandsmeistararatitilinn í karlaflokki þriðja árið í röð og í níunda skiptið alls með sigri á liði KR-C í þremur viðureignum með samtals 35 stigum gegn 25.

Í kvennaflokki reyndust Deildar- og bikarmeistararnir KFR-Valkyrjur sterkari en ÍR-Buff sem var að spila í úrslitum í fyrsta skipti og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í áttunda sinn með samtals 34,5 stigum gegn 25,5.

ÍR er tvöfaldur Íslandsmeistarari félaga 2014

Fjórði og síðasti leikdagur Íslandsmóts félaga fór fram í Keiluhöllinni Egilshöll á dögunum. ÍR karlar tryggðu sér titilinn Íslandsmeistarar félaga í Opnum flokki, en KR karlar urðu í 2. sæti og eftir spennandi keppni fór svo að ÍR konur tryggðu sér 3. sætið.

ÍR konur endurheimtu svo titilinn Íslandsmeistari félaga í kvennaflokki, KFR konur urðu í 2. sæti, ÍFH konur í 3. sæti  og ÍA konur í 4. sæti.

Meistaramót ÍR

Meistaramót Keiludeildar ÍR 2014 verður haldið í Keiluhöllinni í Egilshöll sunnudaginn 18. maí og hefst keppni kl. 10:00. Keppt verður með og án forgjafar sem er 80% af mismun á meðaltali keppanda og þess keppanda í mótinu sem hefur hæst meðaltal, hámark 64 pinnar. Spilaðir verða 3 leikir í forkeppni og 4 efstu keppendurnir með og án forgjafar spila síðan til úrslita. Mótið er fyrir alla skuldlausa félagsmenn í ÍR og er skráning á staðnum. Verð kr. 1.000 kr og innfalin er pizzaveisla að móti loknu. Olíuburður í mótinu er Bourbon street 40 fet. Sjá auglýsingu.