ECC 2014, Evrópumóti landsmeistara lauk í dag í Egilshöll. Evrópumeistarar eru Birgit Pöppler frá Þýskalandi og Tom van der Vilet frá Hollandi
ECC 2014, Evrópumóti landsmeistara lauk í dag í Egilshöll. Evrópumeistarar eru Birgit Pöppler frá Þýskalandi og Tom van der Vilet frá Hollandi
Arnar Sæbergsson landsliðsþjálfari hefur valið karlalandsliðið sem fer á HM í Abu Dhabi í desember.
Íslensku keppendurnir á ECC 2014 hafa lokið keppni.
Vegna tæknilegra vandamála hefur ekki veirð hægt að uppfæra kli.is Nú er búið að laga þetta og fréttir fara að streyma inn.
Síðasti dagur ECC 2014 er í dag og er leikið til úrslita í kvenna- og karlaflokki.
Fyrsta keppnisdegi í kvennaflokki er lokið á Evrópumóti landsmeistara sem fram fer í Keiluhöllinni Egilshöll. Keppendur léku 8 leiki í dag og það er Brigit Pöppler frá Þýskalandi sem lék best. Hún er með 1858 stig sem gerir 232,2 í meðaltal á leik. Í öðru sæti er Reja Lundén frá Finlandi með 1774 stig og í því þriðja Lisa John frá Englandi með 1760 stig.
Ástrós Pétursdóttir er sem stendur í 18. sæti með 1563 stig eða 195,4 í meðaltal.
Keppni hjá konunum heldur áfram á morgun kl. 14:30 en keppni hefst í karlaflokki kl. 14:30. Ókeypis aðgangur er að mótinu.
Allar stöður úr leikjum má finna á síðu mótsins www.ecc2014.is
Meðfylgjandi myndir eru af Birgit Pöppler.
Eins og kunnugt er verður keppni Evrópubikars einstaklinga í keilu 2014 í Keiluhöllinni Egilshöll næstu daga. Fyrir Íslands hönd keppa þau Magnús Magnússon ÍR og Ástrós Pétursdóttir ÍR en þau eru Íslandsmeistarar einstaklinga 2014. Erlendu keppendurnir og aðstoðarmenn þeirra eru flestir komnir til landsins og óformlegar æfingar eru hafnar. Á morgun hefst svo mótið með formlegum æfingum kl. 10:00 og standa þær fram til kl. 19:00. Að þeim loknum verður síðan opnunarhátíð mótsins og hefst hún stundvíslega kl 20:00. Keppendur munu þá ganga fylktu liði inn í salinn ásamt því að ræður verða fluttar. Einnig munu Andrés Haukur Hreinsson, fyrir hönd starfsfólks mótsins, og Ástrós Pétursdóttir, fyrir hönd leikmanna, fara með drengskaparheit starfsmanna og keppenda.
Keppnin hefst svo með því að fyrsti riðill kvenna hefur leik miðvikudaginn kl 09:00. Karlarnir hefja svo keppni en fyrsti riðill þeirra hefur leik sama dag kl 14:30. Leiknir verða þrisvar sinnum 8 leikir í forkeppni og fara svo átta efstu karlar og átta efstu konur í 8 manna úrslit.
Úrslitakeppnin verður laugardaginn 18. október og hefst hún kl 09:00. Úrslitakeppnin er leikin þannig að um útsláttarkeppni er að ræða og þarf keppandi að sigra andstæðing sinn í tveim leikjum til að komast áfram. Sá sem er efstur eftir forkeppni mætir þeim sem er í áttunda sæti, annað sætið keppir á móti þeim sem var í sjöunda og svo koll af kolli. Undanúrslitin verða þannig að sá sem var ofar eftir forkeppni keppir við þann sem var lægstur og þeir sem voru í miðjunni keppa sín á milli. Sá sem fyrr vinnur 2 leiki kemst í sjálfan úrslitaleikinn og keppir um titilinn Evrópumeistari einstaklinga 2014. Áætlað er að sjálf úrslitin hefjist kl 12:30 hjá konunum en kl 14:00 hjá körlum. Sjónvarpað verður frá laugardeginum á bæði sportrás RÚV sem og á SportTV.
Húsið verður opið fyrir áhorfendur og eru keilarar hvattir til að mæta og fylgjast með enda er hér um að ræða sterkasta mót sem haldið hefur verið hér á landi og fágætt tækifæri til að sjá bestu keilara í Evrópu spila. Aðgangur er ókeypis. Úrslit og aðrar upplýsingar verða svo birtar hér á síðu Keilusabandsins og á vef mótsins www.ecc2014.is
Vikuna 13. til 19. október næstkomandi verður Evrópumót einstaklinga í keilu 2014 haldið í Keiluhöllinn Egilshöll. Keilusamband Íslands sér um framkvæmd mótsins í samvinnu við Evrópusamband keilunnar ETBF. Íslendingar eiga tvo fulltrúa á mótinu en það eru ÍR-ingarnir Magnús Magnússon og Ástrós Pétursdóttir en þau eru Íslandsmeistarar einstaklinga 2014.
Um 65 erlendir þátttakendur eru skráðir á mótið. Áætlað er að fjöldi þáttakenda og aðstoðarmanna verði um 140 talsins. Einn þekktasti keilarinn sem kemur á mótið er Finninn Kimmo Lehtonen en hann er núverandi Evrópumeistari einstaklinga ásamt því að hafa á sínum ferli m.a. unnið heimsmeistaratitil, AMF titil og fjölda aðra titla. Einnig kemur hingað til lands í annað sinn Lisa John frá Englandi sem er Englandsmeistari kvenna 2014 en hún kom hér fyrr á árinu og keppti á RIG mótinu.
Sjónvarpað verður frá mótinu bæði á rásum RÚV Sport laugardaginn 18. október og á SportTV alla dagana. Úrslitin verða svo í beinni á báðum þessum stöðvum.
Er þetta einn viðamesti viðburður sem íslenska keilusamfélagið hefur komið að hér á landi og mikil vinna hefur verið við að undirbúa mótið. Einnig er ljóst að mikil vinna verður við framkvæmd mótsins og er óskað eftir sjálfboðaliðum til að aðstoða við þá framkvæmd. Áhugasömum er bent á að hafa samband við þá Þórarinn Þorbjörnsson formann Keilusamband Íslands [email protected] eða Valgeir Guðbjartsson mótstjóra ECC2014 [email protected].
Allar nánari upplýsingar um mótið má finna á vefsíðu mótsins www.ecc2014.is
Í tengslum við ECC mótið verður Juha Maja aðalkennari Evrópska Keilusambandsins með námskeið dagana 20. – 22. október. Námskeiðið er byggt upp bæði af bóklegri og verklegri kennslu og er gráðan ETBF Level 1. Bóklega kennslan fer fram í íþróttamiðstöðinni Laugardal, en verklegi hlutinn verður í Öskjuhlíð. Verð á námskeið verður kr. 30.000,- á mann. Skráning verður hjá Þórarni Þorbjörnssyni eða Theódoru Ólafsdóttur
Á síðasta formannafundi var rætt um tilhögun keppni í 1. deild karla þetta tímabilið. Var umræðan vegna breytinga sem gerð var á deildinni það er að spilað er með þriggja manna lið og að allir spili við alla upp á stig.
Samþykkt var á fundinum að framkvæmdin yrði með eftirfarandi hætti:
Gestalið stillir upp sínu liði fyrir fyrsta leik og síðan stillir heimalið sínum mönnum á móti. Í næsta leik skulu leikmenn gestaliðs færast niður um eitt sæti en leikmenn heimaliðs skulu vera í sömu sætum og þeir voru. Leikirnir skulu spilast þannig að gestaliðið er uppstillt í:
Leikur 1 A – B – C
Leikur 2 C – A – B
Leikur 3 B – C – A
Sé leikmanni skipt inn á í lið eftir fyrsta leik skal hann að sjálfsögðu koma inn í röðina í stað þess leikmanns sem fer útaf.