Íslandmeistarar einstaklinga 2024 Hafdís Pála Jónasdóttir KFR og Gunnar Þór Ásgeirsson ÍR

slandsmóti einstaklinga 2024 í keilu lauk á mánudag með hörku úrslitakeppni í beinni útsendingu á Stöð2 sport.

Þátttakan í mótinu var mjög góð þetta árið, en alls tóku þátt 20 konur og 30 karlar og hillir undir að mótið þurfi að vera tvískipt á komandi árum. Í kvenna flokki var yngsti keppandinn 11 ára og sú elsta var 73 ára, en þess má geta að Jóna Gunnarsdóttir tók þátt í sínu 36 íslandsmóti í röð. Í karlaflokki létu ungmennin til sín taka þar sem þrír af átta keppendum í undanúrslitum voru undir 19 ára aldri og sá yngsti einungis 13 ára.

Í kvennaflokki spiluðu til úrslita Hafdís Pála Jónasdóttir KFR, Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR og Nanna Hólm Davíðsdóttir ÍR. Linda féll fyrst úr leik og keppt þær Hafdís og Nanna til úslita.  Íslandsmeistari kvenna 2024 varð Hafdís Pála Jónasdóttir KFR

Loka staða hjá konunum:
1.sæti Hafdís Pála Jónasdóttir KFR 
2.sæti Nanna Hólm Davíðsdóttir ÍR
3.sæti Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR

Í karla flokki var þetta blanda af eldri og yngri sem spiluðu til úrslita, en Ísak er 19 ára.  Þeir sem spiluðu til úrslita vor Hafþór Harðarson,  Gunnar Þór Ásgeirsson og Ísak Birkir sævarsson. Hafþór féll fyrstur úr leik og til úrslita léku þeir Ísak Birkir og Gunnar Þór.  Íslandsmeistari Karla 2024 var Gunnar Þór Ásgeirsson ÍR

Lokastaða hjá körlum:
1.sæti Gunnar Þór Ásgeirsson  ÍR
2.sæti Ísak Birkir Sævarsson ÍA
3.sæti Hafþór Harðarson ÍR

Bikarkeppni liða, 8 liða úrslit

Fyrir úrslitin í Íslandsmóti Öldunga 2024 var dregið í 8 liða úrslit í bikarkeppni liða.  Eftirfarndi er niðurstaðan og leikið verður 25. febrúar kl. 10:00

Konur:

KFR-Skutlurnar  –  KFR-Ásynjur

ÍR-Elding  –  ÍR-TT

KFR-Afturgöngurnar  –  KFR-Valkyrjur

ÍA-Meyjur  –  ÍR-BK

 

Karlar:

ÍR-KLS  –  ÍR-A

ÍR-Broskarlar / KFR-Grænu töffararnir  –  ÍR-L

KFR-Stormsveitin / ÍR-PLS  –  ÍA-C

ÍA  –  KFR-Lærlingar / ÍR-Fagmaður

Íslandsmót Öldunga 2024

Um liðna helgi var spilað á Íslandsmóti öldunga. Þar geta allir sem eru 50 ára eða eldri tekið þátt. Spilaðir voru 12 leikir í forkeppni á laugardag og sunnudag og komust 6 áfram í undanúrslit. Á mánudag var svo spiluð 6 manna undanúrslit þar sem allir leika við alla og fást bónusstig fyrir sigur í viðureign. Efstu 3 komast svo áfram í úrslit.

 

Í kvennaflokki var það Anna Soffía Guðmundsdóttir KFR sem stóð uppi sem sigurvegari í fyrsta sinn á Íslandsmóti öldunga eftir harða baráttu við Lindu Hrönn Magnúsdóttur ÍR í úrslitaviðureigninni. Snæfríður Telma Jónsson ÍR var í því þriðja.

 

Í karlaflokki varð Þórarinn Már Þorbjörnsson ÍR Íslandsmeistari öldunga eftir að hafa sigrað Guðmund Sigurðsson ÍA í úrslitum. Bjarki Sigurðsson ÍR lenti í þriðja sæti

Til hamingju Anna Soffía og Þórarinn Már!

Íslandsmót einstaklinga 2024

Íslandsmót einstaklinga 2024 verður haldið dagana 2.mars til 4.mars í Keiluhöllinni Egilshöll.

Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur fimmtudaginn 29. febrúar kl 18:00
Skráning hér

Olíuburður í mótinu er: ECC2023

Reglugerð um mótið má nálgast hér

Forkeppni laugardaginn 2. og sunnudaginn 3. mars kl 9:00

Spilaðir eru 12 leikir í tveimur 6 leikja blokkum.

Verð í forkeppni kr. 15.000kr

Efstu keppendur í bæði karla- og kvennaflokki skv. upptalningu hér að neðan spila 6 leiki og fylgir skorið úr forkeppninni í milliriðil.

8 efstu eftir milliriðil komast í undanúrslit.

  • 17 þátttakendur eða færri = 10 keilarar áfram í milliriðil
  • 18 til 19 þátttakendur = 12 áfram í milliriðil
  • 20 til 21 þátttakendur = 14 áfram í milliriðil
  • 22 þátttakendur eða fleiri = 16 áfram í milliriðil

Milliriðill sunnudaginn 3. mars kl 19:00

Spilaðir eru 6 leikir.

Efstu 8 karlar og 8 konur halda áfram í undanúrslit.

Undanúrslit mánudaginn 4. mars kl 17:00

Undanúrslit:

Allir keppa við alla, einfalda umferð.

Á stigin fyrir leikina bætast bónusstig þannig:

Fyrir sigur í leik fást 20 bónusstig

fyrir jafntefli í leik fást 10 bónusstig

Að loknum þessum leikjum fara 3 efstu keppendurnir í úrslit.

Úrslit: að loknum undanúrslitum

Að þessu sinni verða úrslitin sýnd í beinni útsendingu á Stöð2 sport og verður byrjað á að sýna frá úrslitum kvenna og síðan úrslit karla.

Spiluð eru úrslit milli þriggja efstu manna/kvenna sem leika allir einn leik á sama setti

Allir leika einn leik og fellur úr leik sá sem hefur lægsta skorið.

Eftir eru tveir keppendur og leika þeir einn leik til úrslita og fær sigurvegarinn titilinn Íslandsmeistari einstaklinga.

Sé einhversstaðar í úrslitum jafnir leikir sem verða til þess að ekki sé hægt að skera úr um hvort keppandi detti út eða vinni leik skal útkljá leikinn með því að leikmenn kasta einu kasti og sá vinnur sem fellir flestar keilur.

Ef enn er jafnt skal endurtaka þetta þar til úrslit liggja fyrir.

Mótanefnd KLÍ

Íslandsmót öldunga 2024

Íslandsmót öldunga (50 ára og eldri) fer fram 17. – 19. febrúar 2024

Til að hafa þátttökurétt í Íslandsmóti öldunga þarf þátttakandi að ná 50 ára aldri á því almanaksári sem mótið er haldið.

17. & 18. febrúar Forkeppni (6 leikir hvern dag)

19. febrúar undanúrslit og úrslit

Olíuburður:  2023 European Seniors Championships – 43 fet

Skráning fer fram hér lokað verður fyrir skráningu 16. febrúar kl 18:00

Reglugerð um mótið er hægt að nálgast hér

Forkeppni:

Verð í forkeppni er kr. 15.000,-

Spilað laugardag og sunnudag kl 09:00

Allir keppendur leika 12 leiki,

6 leiki í senn, bæði kyn spila í blönduðum hóp ef þátttaka leyfir.

Skorið úr forkeppninni fylgir í undanúrslit og keppa 6 efstu karlar og 6 efstu konur.

Lámark þarf að vera 8 í hvorum flokk til að ekki sé spilað blönduðum flokk

Undanúrslit

Verð í undanúrslit kr. 6.250,-

Spilað mánudag kl 19:00

Allir keppa við alla, einfalda umferð.

Á stigin fyrir leikina bætast bónusstig þannig:

Fyrir sigur í leik fást 20 bónusstig

fyrir jafntefli í leik fást 10 bónusstig

Að loknum þessum leikjum fara 3 efstu keppendurnir í úrslit.

 

Úrslit

Verð í úrslit kr. 1.650,-

Spiluð eru úrslit milli þriggja efstu manna/kvenna sem leika allir einn leik á sitthvoru settinu.
Allir leika einn leik og fellur úr leik sá sem hefur lægsta skorið. Eftir eru tveir keppendur og leika þeir einn leik til úrslita og fær sigurvegarinn titilinn Íslandsmeistari Öldunga.
Sé einhversstaðar í úrslitum jafnir leikir sem verða til þess að ekki sé hægt að skera úr um hvort keppandi detti út eða vinni leik skal útkljá leikinn með því að leikmenn kasta einu kasti og sá vinnur sem fellir flestar keilur. Ef enn er jafnt skal endurtaka þetta þar til úrslit liggja fyrir.

 

 

Ef ekki er næg þátttaka í flokki getur Mótanefnd fellt flokkinn niður.

Miðað er við lámark 9 í flokk til að hann sé ekki feldur niður, ef ekki næst lámark í annanhvorn flokkin að þá er spilað í blönduðum flokk

Íslandsmót einstaklinga 2024 með forgjöf

Íslandsmót einstaklinga með forgjöf 2024 fer fram dagana 3. – 6. febrúar 2024
 

Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur föstudaginn 2. febrúar klukkan 13:00.
Skráning h
ér

Olíuburður í mótinu er:

Reglugerð um mótið er hægt að nálgast hér 

Forkeppni 3. og 4. febrúar 2024 kl 09:00

Verð í forkeppni kr. 15.000
Spilaðir eru 12 leikir í tveimur 6 leikja blokkum.

Forgjöf er 80% af mismun meðaltals og 220, hámark 80 pinnar.
Ekki er hægt að hafa neikvæða forgjöf og sé leikmaður með hærra meðaltal en 220 skal hann hafa 0 í forgjöf. Hámarksskor í einum leik verður aldrei hærra en 300.
Til að hafa þátttökurétt í Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf þarf viðkomandi að hafa meðaltal viðurkennt af KLÍ úr a.m.k. 18 leikjum, annars er forgjöf engin.

12 efstu karlarnir og 12 efstu konurnar halda áfram í milliriðil.

Milliriðill mánudaginn 5.feb kl 19:00

Verð í milliriðil kr. 7.500

12 efstu keppendurnir spila 6 leiki,

6 efstu keppendurnir í karla og kvenna flokk fara áfram í undanúrslit og fylgir skorið úr forkeppninni og milliriðlinum.

Undanúrslit þriðjudaginn 6. febrúar kl 19:00

Verð í undanúrslit kr. 6.250

Allir keppa við alla, einfalda umferð.

Á stigin fyrir leikina bætast bónusstig þannig:

Fyrir sigur í leik fást 20 bónusstig

fyrir jafntefli í leik fást 10 bónusstig

Að loknum þessum leikjum fara 3 efstu keppendurnir í úrslit.

Úrslit spiluð á eftir undanúrslitum

Verð í úrslit kr. 1.250

Úrslit:

Spiluð eru úrslit milli þriggja efstu karla/kvenna

Allir leika einn leik og fellur úr leik sá sem hefur lægsta skorið.

Eftir eru tveir keppendur og leika þeir einn leik til úrslita og fær sigurvegarinn titilinn Íslandsmeistari einstaklinga með forgjöf.

Sé einhversstaðar í úrslitum jafnir leikir sem verða til þess að ekki sé hægt að skera úr um hvort keppandi detti út eða vinni leik skal útkljá leikinn með því að leikmenn kasta einu kasti og sá vinnur sem fellir flestar keilur.

Ef enn er jafnt skal endurtaka þetta þar til úrslit liggja fyrir.

Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur fimmtudaginn 2. febrúar klukkan 13:00.

Mótanefnd KLÍ

Mótanefnd áskilur sér rétt til breytinga ef þurfa þykir.

 

Dregið í 16 liða bikar

Dregið hefur verið í 16 liða úrslitum í bikarkeppni liða 2023-2024.  Í kvenna flokki eru 10 lið skráð til leiks og þurfti því að draga í 2 viðureignir sem eru eftirfarandi.

ÍR-BK  –  ÍR-N    

ÍR-TT  –  ÍR-KK

Í karlaflokki voru dreginn 16 lið og varð niðurstaðan eftirfarandi:

KFR-Grænu Töffararnir  –  ÍR-Broskarlar

ÍR-A  –  ÍA-B

ÍA-C  –  ÍA-W

KFR-Stormsveitin  –  ÍR-PLS

ÍA  –  ÍR-Geirfuglar

ÍR-KLS / KR-B  –  ÍR-NAS

KFR-Lærlingar  –  ÍR-Fagmaður

KFR-Þröstur  –  ÍR-L

Leikirnir verða leiknir þann 11. febrúar kl. 10:00