Keiludeild ÍR stendur fyrir kennslu í keilu í næstu viku. Kennari verður Svíinn Robert Anderson sem er meðal bestu keilara í Evrópu í dag og er núverandi heimsmeistari í tvímenningi. Kennslan verður fimmtudaginn 28. desember og hver kennslustund er 80 mínútur og hægt er að velja um eftirtalda tíma: kl. 13:00 – 14:20, 14:30 – 15:50, 18:30 – 19:50 og 20:00 – 21:20. Verð er kr. 2.000 á mann og komast hámark 8 manns að í hvern tíma. Skráning fer fram hjá Þórarni Þorbjörnssyni í síma 820 6404. Sjá nánar í auglýsingu
ÍR-PLS og KFR-Valkyrjur Íslandsmeistarar liða 2024
Í kvöld lauk úrslitakeppninni í Íslandsmóti liða 2024 með sigri