Reglugerð KLÍ um Íslandsmót para

  1. grein

Íslandsmót para skal haldið árlega.

      2.grein

Með pari er átt við einn karl og eina konu. Þátttaka pars er ekki bundin við að báðir aðilar komi úr sama félagi/héraði.

  1. grein

Leitast skal við að færslur séu þannig að leikmenn spili á sem flestum brautarpörum. Leikmenn á brautum með odda tölu skulu færast niður og leikmenn á brautum með sléttum tölum skulu færast upp.

  1. grein

Ef skera þarf úr um jafntefli í sætaröðun þá skal síðasti leikur látinn gilda þ.e. það par sem er með hærri leik hlýtur efra sætið. Ef hann er jafn hár þá er farið í næsta leik þar á undan og síðan koll af kolli.

  1. grein

Ef par forfallast þegar komið er í milliriðil, fer það par sjálfkrafa í neðsta sæti í milliriðli. Ekki skal færa par upp um sæti þó einhver forfallist, þ.e.a.s. að setja inn par sem ekki hefur áunnið sér sæti í milliriðli.

 grein

Forkeppni

Leikin skal ein 6 leikja sería. Efstu 8 pörin halda áfram í milliriðil. Skorið í forkeppni fylgir í milliriðil.

Milliriðill

8 efstu pörin spila 6 leiki. Tvö stigahæstu pörin fara í úrslit.

Úrslit

Tvö stigahæstu pörin leika til úrslita. Það par sem er efst að stigum fyrir úrslit nægir að vinna tvær viðureignir (2 stig) en annað sætið þarf að vinna þrjár (3 stig). Jafnteflis viðureignir skal útkljá með því að pörin kasta einu kasti hvert og ræður samtala parsins úrslitum. Ef enn er jafnt skal endurtaka þetta þar til úrslit liggja fyrir.

Sigurvegararnir hljóta titilinn „Íslandsmeistarar para“.

  1. grein

Móta­nefnd KLÍ annast undir­búning og framkvæmd keppninnar.

Breytt á formannafundi 29. apríl 2009
Breytt á formannafundi 16. apríl 2015

Breytt á stjórnarfundi KLÍ 11. ágúst 2026