Reglugerð KLÍ um Íslandsmót í tvímenningi

  1. grein

Íslandsmót í tvímenningi skal haldið árlega.

  1. grein

Bæði karlar og konur geta myndað tvímenning. Þátttaka tvímennings er ekki bundin við að báðir aðilar komi úr sama félagi/héraði. Konur fá 8 pinna í forgjöf.

  1. grein

Leitast skal við að færslur séu þannig að leikmenn spili á sem flestum brautarpörum. Leikmenn á brautum með odda tölu skulu færast niður og leikmenn á brautum með sléttum tölum skulu færast upp.

  1. grein

Ef skera þarf úr um jafntefli í sætaröðun þá skal síðasti leikur látinn gilda þ.e. sá tvímenningur sem er með hærri leik hlýtur efra sætið. Ef hann er jafn hár þá er farið í næsta leik þar á undan og síðan koll af kolli.

  1. grein

Ef tvímenningur forfallast þegar komið er í undanúrslit, fer sá tvímenningur sjálfkrafa í neðsta sæti í undanúrslitum. Ekki skal færa tvímenning upp um sæti þó einhver forfallist, þ.e.a.s. að setja inn tvímenning sem ekki hefur áunnið sér sæti í undanúrslitum.

  1. grein

Forkeppni

Leikin skal ein 8 leikja sería. Efstu 6 tvímenningarnir halda áfram í undanúrslit. Skorið í forkeppni fylgir í undanúrslit.

Undanúrslit

Allir keppa við alla, einfalda umferð. Á stigin fyrir leikina bætast bónusstig þannig:

  • fyrir sigur í leik fást 40 bónusstig
  • fyrir jafntefli í leik fást 20 bónusstig

Tveir efstu tvímenningarnir komast í úrslit.

Úrslit

Tveir stigahæstu tvímenningarnir leika til úrslita. Sá tvímenningur sem er efstur að stigum fyrir úrslit nægir að vinna tvær viðureignir (2 stig) en annað sætið þarf að vinna þrjár (3 stig). Jafnteflis viðureignir skal útkljá með því að báðir tvímenningar kasta einu kasti hver og ræður samtala tvímennings úrslitum. Ef enn er jafnt skal endurtaka þetta þar til úrslit liggja fyrir.

Sigurvegarinn fær titilinn Íslandsmeistari í tvímenningi.

  1. grein

Mótanefnd KLÍ annast undirbúning og framkvæmd keppninnar.

Breytt á formannafundi 28. apríl 2011
Breytt á formannafundi 16. apríl 2015
Breytt á stjórnarfundi KLÍ 23.10.2022

Beytt á stjórnarfundi KLÍ 14.10.2024

Breytt á stjórnarfundi KLÍ 11.08.2026