Reglugerð KLÍ um Íslandsmót Öldunga (50+)

1. grein

Íslandsmót öldunga (50 ára og eldri) skal haldið árlega.

2. grein

Keppt skal án forgjafar í karla og kvenna flokki. Til að hafa þátttökurétt í Íslandsmóti öldunga þarf þátttakandi að ná 50 ára aldri á því almanaksári sem mótið er haldið.

3. grein

Ekki skal leika fleiri en 1 leik í senn á sama brautarpari í forkeppni.  Leikmenn á brautum með odda tölu skulu færast niður og leikmenn á brautum með sléttum tölum skulu færast upp.  Leitast skal við að færslur séu þannig að leikmenn spili á sem flestum settum.

4. grein

Ef skera þarf úr um jafntefli í sætaröðun þá skal síðasti leikur látinn gilda þ.e. sá/sú sem er með hærri leik hlýtur efra sætið.  Ef hann er jafn hár þá er farið í næsta leik þar á undan og síðan koll af kolli.

5. grein

Ef keppandi forfallast þegar komið er í undanúrslit, fer sá keppandi sjálfkrafa í neðsta sæti í þeim riðli sem hann mætti ekki til. Ekki skal færa keppendur upp um sæti þó einhver forfallist, þ.e.a.s. að setja inn keppanda sem ekki hefur áunnið sér sæti í viðkomandi riðli.

6. grein: Einstaklingskeppni án forgjafar

Forkeppni

Allir keppendur leika 12 leiki, 6 leiki í senn, bæði kyn spila í blönduðum hóp ef þátttaka leyfir. Skorið úr forkeppninni fylgir í undanúrslit og keppa 6 efstu karlar og 6 efstu konur.

Undanúrslit

Allir keppa við alla, einfalda umferð.

Á stigin fyrir leikina bætast bónusstig þannig:

Fyrir sigur í leik fást 20 bónusstig

fyrir jafntefli í leik fást 10 bónusstig

Að loknum þessum leikjum fara 3 efstu keppendurnir í úrslit.

Úrslit

Spiluð eru úrslit milli þriggja efstu í hvorum flokki, leikið á sitthvoru settinu. Allir leika einn leik og fellur úr leik sá sem hefur lægsta skorið. Eftir eru tveir keppendur og leika þeir einn leik til úrslita og fær sigurvegarinn titilinn Íslandsmeistari Öldunga. Sé einhversstaðar í úrslitum jafnir leikir sem verða til þess að ekki sé hægt að skera úr um hvort keppandi detti út eða vinni leik skal útkljá leikinn með því að leikmenn kasta einu kasti og sá vinnur sem fellir flestar keilur. Ef enn er jafnt skal endurtaka þetta þar til úrslit liggja fyrir.

7. grein

Ef ekki er næg þátttaka í flokki getur Mótanefnd fellt flokkinn niður.

8. grein

Íslandsmeistarar Öldunga eiga rétt á að sækja um sérstakan styrk til KLÍ vegna ferða á mót erlendis.

Samþykkt á formannafundi 1.maí 2013
Samþykkt á formannafundi 12. maí 2014
Samþykkt á formannafundi 16. apríl 2015
Samþykkt á formannafundi þann 28.apríl 2016
Samþykkt á stjórnarfundi þann 20. febrúar 2020