Bára Líf og Hafþór Íslandsmeistarar para 2026

Facebook
Twitter

Íslandsmóti para lauk í dag, 25. október. Alls tóku 22 pör þátt í mótinu og eftir spennandi úrslitaviðureign tryggðu Bára Líf Gunnarsdóttir og Hafþór Harðarson, bæði úr ÍR, sér Íslandsmeistaratitilinn 2026.

Mótið hófst á laugardegi með sex leikja forkeppni þar sem átta efstu pörin tryggðu sér sæti í milliriðli. Í milliriðli voru leiknir aðrir sex leikir á sunnudagsmorgni og samanlagður árangur úr báðum umferðum réð því hvaða tvö pör léku til úrslita.

Tristan Máni Nínuson og Nanna Hólm Davíðsdóttir, ÍR, leiddu keppnina eftir forkeppni og héldu forystunni í milliriðli. Þau luku tólf leikjum með samtals 4.450 pinna, aðeins 49 pinnum meira en Bára Líf og Hafþór sem tryggðu sér hitt sætið í úrslitunum með 4.401 pinna.

Spennandi úrslitaviðureign

Tristan og Nanna fóru inn í úrslitakeppnina með eins stigs forskot vegna efsta sætis í milliriðli og þurftu því að vinna tvær viðureignir til að tryggja sér titilinn. Bára Líf og Hafþór þurftu hins vegar að vinna þrjár.

Tristan og Nanna byrjuðu betur og unnu fyrsta leikinn 409–385. Bára Líf og Hafþór svöruðu hins vegar af krafti og unnu næstu þrjá leiki, 427–391, 424–381 og 434–357. Þar með tryggðu þau sér Íslandsmeistaratitilinn eftir glæsilegan endasprett.

Hafþór varð þar með Íslandsmeistari para í fimmta sinn en Bára Líf fagnaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í parakeppni.

Linda Hrönn Magnúsdóttir og Gunnar Þór Ásgeirsson, ÍR, höfnuðu í þriðja sæti.

Keilusamband Íslands óskar Íslandsmeisturunum og öðrum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn og þakkar öllum keppendum fyrir þátttökuna.

Sjá öll úrslit Íslandsmóts para 2026

Nýjustu fréttirnar