Dómaranámskeið verður haldið í Íþróttamiðstöðinni Laugardal á 3. hæð, fundarsölum B og C, fimmtudaginn 1. október næstkomandi og hefst kl. 18:00 stundvíslega.
Fyrirliðar liða sem keppa á Íslandsmóti eru í það minnsta hvattir til að mæta eða senda fulltrúa frá sínu liði á námskeiðið. Einnig er forsvarsfólk félaganna hvatt til að senda fulltrúa sína enda eiga félögin mótaumsjón á hverju leiktímabili. Eins eru aðrir sem áhuga hafa og vilja öðlast réttindi hvattir til að skrá sig og mæta.
Samkvæmt reglugerð okkar fyrir dómara skal vera dómari í öllum A og B mótum að undanskildum deildar- og bikarkeppnum en þar eru það fyrirliðar liða sem fara með dómgæslu.
Boðið verður upp á léttar veitingar á námskeiðinu og er áætlað að það taki um 2 til 3 tíma.
Skráning á námskeiðið




