Dagskrá næsta keppnistímabils hefur verið birt á vef KLÍ. Dagskráin nær til allra móta nema deildarkeppni liða.
Í frétt á vef KLÍ frá 30. apríl var greint frá því að færri brautir yrðu í boði á mánudögum og þriðjudögum. Undanfarið hafa staðið yfir viðræður milli KLÍ og Keiluhallarinnar og teljum við nú tímabært að upplýsa um stöðuna.
Samkomulagið felur í sér að Reykjavíkurfélögin fá afnot af:
- 12 brautum á mánudögum,
- 12 brautum á þriðjudögum,
- 4 brautum á miðvikudögum.
Auk þess verða 16 brautir til ráðstöfunar í september, desember og janúar. Þegar þessu öllu er raðað saman er ljóst að heildarfjöldi brauta til afnota verður svipaður og á síðasta tímabili. Það þýðir að hægt verður að leika deildarkeppnina á virkum dögum en ekki um helgar.
Hins vegar er ljóst að ekkert svigrúm verður til að færa eða fresta leikjum á virkum dögum. Allir leikir sem þarf að fresta eða færa verða því leiknir um helgar.
Tímabilið hefst 14. september 2026 og lokaumferð fer fram 8. maí 2027.
Á komandi tímabili verður ekki hægt að tryggja að hver deild hafi fasta leikdaga. Markmiðið verður þess í stað að ljúka hverri umferð eins fljótt og auðið er. Þetta getur þýtt að lið leiki á mismunandi virkum dögum eftir því hvaða brautir eru í boði. Einnig getur komið upp sú staða að lið leiki ekki í tiltekinni viku ef fjöldi leikja er meiri en brautaframboðið leyfir. Slíkir leikir færast þá yfir á næstu viku.



