Nú fer að hefjast Evrópumót kvenna en að þessu sinni er keppt í Óðinsvéum Danmörku.
Mótið hefst á fimmtudaginn með formlegum æfingum en þá verður orðið ljóst hvernig olíuburður mótsins verður. Á föstudaginn hefst svo keppnin fyrir alvöru en þá verður leikið í einstaklingskeppninni, dagskrá mótsins má sjá hér. Mótinu lýkur svo laugardaginn 20. júní með Masters keppninni og við skulum vona að okkur takist að eiga fulltrúa í þeirri keppni.
Lið Íslands er annars skipað þannig:
- Ágústa Kristín Jónsdóttir
- Bára Líf Gunnarsdóttir
- Guðbjörg Harpa Sigurðardóttir
- Marika Katarina E. Lönnroth
- Olivia Clara Steinunn Lindén
- Steinunn Inga Guðmundsdóttir
Þjálfarar eru:
- Adam Pawel Blaszczak
- Magnús Sigurjón Guðmundsson
Allar upplýsingar um mótið má finna á vefsíðu þess, þar verður hægt að sjá stöður í keppnum, sjá væntanlega lifandi streymi og fleiri hagnýtar upplýsingar.





