Í kvöld lauk úrslitakeppni 1. deilda karla og kvenna þetta keppnistímabilið. Það voru ÍR liðin PLS og TT sem tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í ár. ÍR-PLS lagði lið ÍR-L með 23 stigum gegn 9 og ÍR-TT lagði við KFR-Valkyrjur með 23 stigum gegn 13. Alls þarf að vinna meirihluta stiga eða hærra skor úr þrem viðureignum en í þeim eru 42 stig í pottinum.
Þetta er alls 13 Íslandsmeistaratitill ÍR-PLS liðsins og sá sjötti hjá ÍR-TT liðinu.
Í 3. sæti hjá deildarliðum karla voru það lið ÍA og KFR-Lærlingar sem komust í úrslitakeppnina en í 1. deild kvenna fara bara tvö lið í úrslitakeppni og í þriðja sæti varð því lið ÍR-Elding.
Sjá má stöður úr keppninni hér:
Streymt var frá úrslitaviðureignum og má sjá útsendingar hér á YouTube rás KLÍ.
ÍR-PLS og ÍR-L í verðlaunaafhendingu
ÍR-TT og KFR-Valkyrjur í verðlaunaafhendingu
Íslandsmeistarar liða 2026 – ÍR-TT og ÍR-PLS







