Nýr valkostur: 10 skipta kort í Keiluhöllinni

Facebook
Twitter

Keiluhöllin Egilshöll hefur nú tekið í notkun nýjan valkost fyrir keilara og býður til sölu 10 skipta kort í keilu sem kostar 15.900 kr.

Nýjungin kemur í kjölfar viðræðna Keilusambandsins og Keiluhallarinnar en markmiðið er að mæta betur þörfum ólíkra iðkenda enda hentar árskort ekki öllum. Skiptakort getur hentað til dæmis þeim sem hafa ekki tækifærti á að æfa oft, eru að stíga sín fyrstu skref í keilu eða vilja hafa meiri sveigjanleika. Með 10 skipta kortinu fá keilarar hagkvæman kost til að nýta sér aðstöðuna í Keiluhöllinni án þess að skuldbinda sig til lengri tíma.

Keilusambandið fagnar framtakinu og telur að þessi nýi valkostur geti stuðlað að aukinni þátttöku í íþróttinni og gert fleirum kleift að stunda keilu með reglubundnum hætti.

Kortin fást í afgreiðslu Keiluhallarinnar og hægt er að panta braut með því að hringja í Keiluhöllina (511-5300) eða með því að senda tölvupóst á [email protected] Frá september til maí er hægt að nýta kortin á sama tíma og árskort en júní til ágúst er engin takmörkun hvað varðar tíma. 

Nýjustu fréttirnar