Eins og áður hefur verið sagt frá er Arnar Davíð Jónsson staddur út í Bandaríkjunum þar sem hann hefur keppt á þó nokkrum mótum innan bandarísku atvinnumótaraðarinnar, PBA tour. Nú er hann að keppa á 2026 Surfside PBA New York Classic og eftir forkeppni mótsins komst hann áfram í gegn um fyrsta niðurskurðinn. Alls eru skráðir 132 keppendur á þessu móti og eftir 16 leiki er Arnar Davíð í 32. sæti með 220.6 í meðaltal en 44 komust áfram í mótinu.
Skilur Arnar Davíð eftir fyrir neðan sig nokkuð stór nöfn svo sem EJ Tacket, einn besti keilarinn í dag í heiminum, Ryan Barnes og fleiri.
Í dag verða leiknir 6 leikir og eftir það komast 24 efstu áfram í mótinu. Sem stendur er sá sem er í því sæti með 221,3 í meðaltal svo keppnin er ansi jöfn og spennandi.
Við sendum Arnari Davíð sterka og góða strauma yfir hafið og fylgjumst spennt með á vef mótsins.




