Staðan í deildarkeppni undir lok tímabilsins – 2. deild karla

Facebook
Twitter

Nú eru einungis eftir örfáir leikir í deildarkeppni KLÍ þetta keppnistímabilið og tilvalið að spá í stöðuna, setja upp spádómsgleraugun og skoða hvernig þetta tímabil ætlar að fara.

Lokaumferð deildarkeppninnar verður laugardaginn 18. apríl eftir tæpar tvær vikur og þá verður lokahóf sambandsins þá um kvöldið og eru keilarar hvattir til að næla sér í miða og taka þátt í skemmtuninni, fagna verðlaunum sem veitt verða og samgleðjast öðrum – Miðapantanir fyrir lokahófið eru hér.

En þá að deildarkeppninni

Í 2. deildinni vetur eru 11 lið þar sem Þór dróg sig úr keppni í byrjun deildarinnar. Eftir tímabillið verður liðum fækkað niður í 10 eins og áður var svo það fer af stað smá kapall í lok þessa tímabils um hvernig sætaskipan verður í haust. Neðsta liðið fellur beint um deild og tvö þar fyrir ofan fara í umspil um sæti í deildinni við næst efsta sæti þriðju deildar.

Þar sem lið eru með mis marga leiki undir belti er smá vandi að skoða einhverja ákveðna og jafna stöðu upp á fjölda leikja, þegar þetta er til dæmis ritað þá eru lið með ýmist 17 til 19 leiki komna í hús.

Skoðum þá hvað er í gangi

Fátt ætlar að koma í veg fyrir það að ÍR-Naddóður fari upp í 1. deild í haust. Gaman af því þar sem það lið rétt bjargaði sér frá falli úr 2. deildinni síðasta tímabil í lokaumferðinni. Það er svona. Með réttri styrkingu og allt það er ýmsu hægt að áorka. Þeir eru sem sagt í 1. sæti með 164,5 stig eftir 17 leiki og liðið í 2. sæti um sinn er ÍA-W eftir 18 leiki með 147,5. 17 stiga munur sem væri erfiðara að klúðra en bjarga.

Í þriðja sætinu og í baráttu um að komast í umspilsleikinn eru ÍR-Öðlingar með 145,5 stig en eiga leik á ÍA-W sem gerir lokabaráttuna bara spennandi.

Í fjórða sæti eru svo ÍR-LB með 138,5 stig en leik meira en Öðlingarnir svo það verður kannski vandséð að þeir blandi sér í baráttuna um 2. sætið. Eða hvað?

Neðri hlutinn er þannig skipaður að ÍA-C er í 11. sæti og neðst með 77 stig eftir 18 leiki en fyrir ofar þá eru Þór-Víkingar, reyndar með 19 leik en 10 stigum fyrir ofan með 87 stig. og eru því í harðri baráttu við ÍA-C um að sleppa við beint fall en nokkuð ljóst að annaðhvort þessara liða fer í umspil og hitt fellur.

Fyrir ofan þá eru svo ÍR-Blikk með 108,5 stig en eftir 17 leiki og ÍR-Fagmaður er í því 8. með 116,5 eftir jafn marga leiki.

Hvað er svo fram undan hjá þessum liðum?

ÍR-Naddóður á eftir að mæta:

  • ÍR-Öðlingar í 21. umferð
  • ÍR-Fagmaður í 22. umferð

Þarna er ljóst að þeir geta gert Öðlingum skráveifu í baráttu heldri mannanna við 2. sætið.

ÍA-W á eftir að mæta:

  • ÍR-Öðlingum í 22. umferðinni

Já há! Í lokaumferðinni bara. Þetta verður spennandi leikur í Egilshöll, mun líklega ráða úrslitum um hvort þeirra fer í umspil.

ÍR-Öðlingar eiga eftir að mæta:

  • ÍR-Naddóð í 21. umferð
  • ÍA-W í 22. umferð

Hvert stig hér telur svo sannarlega.

ÍA-C á eftir að mæta:

  • ÍR-Fagmaður í 22. umferð

Þór-Víkingar á eftir að mæta:

  • ÍR-Broskarlar í 22. umferð

Bæði þessi lið eiga í raun erfiða leiki eftir. Hér munar um þessi 10 stig og má ætla að það sé handan móðu sjóndeildarhringsins að ÍA-C fari niður um deild og að Þór-Víkingar þurfa að berjast fyrir sæti sínu í deildinni við það lið sem kemur upp úr umspilshattinum.

ÍR-Blikk á eftir að mæta:

  • ÍR-Broskarlar í stuttum burði í 21. umferð
  • ÍR-LB í 22. umferð

Hér er tækifæri fyrir Blikkara að saxa á forskot Fagmanna í leik þeirra á móti Broskörlum en síðasti leikurinn verður þeim erfiður.

ÍR-Fagmaður á eftir að mæta:

  • ÍA-C í 21. umferð
  • ÍR-Naddóður í 22. umferð

Hér þurfa Fagmenn að vera fagmannlegir og ná í sem flest stig á móti ÍA-C á heimavelli því lokaleikurinn verður ansi erfiður fyrir þá.

Þegar rýnt er þá inn í móðu sjóndeildarhringsins sér örla fyrir því að ÍA-C fari beint niður en Þór-Víkingar og ÍR-Blikk enda í umspilinu.

Næst verður þá síðasta deildin tekin fyrir, 3. deild karla.

Nýjustu fréttirnar