Staðan í deildarkeppni undir lok tímabilsins – 2. deild kvenna

Facebook
Twitter

Nú eru einungis eftir örfáir leikir í deildarkeppni KLÍ þetta keppnistímabilið og tilvalið að spá í stöðuna, setja upp spádómsgleraugun og skoða hvernig þetta tímabil ætlar að fara.

Lokaumferð deildarkeppninnar verður laugardaginn 18. apríl eftir tæpar tvær vikur og þá verður lokahóf sambandsins þá um kvöldið og eru keilarar hvattir til að næla sér í miða og taka þátt í skemmtuninni, fagna verðlaunum sem veitt verða og samgleðjast öðrum – Miðapantanir fyrir lokahófið eru hér.

En þá að deildarkeppninni

Í 2. deild kvenna í ár eru 7 lið og því um yfirsetu að ræða. Spilaðar verða 21. umferðir alls í deildinni og eiga lið eftir 2 til 3 leiki eins og í öðrum deildum.

Ef við skoðum stöðuna þegar flest lið nema tvö eru komin með 16 umferðir í hús þá er það þannig að hið fornfræga lið KFR-Afturgöngurnar eru með 181,5 stig og 30 stigum fyrir ofan lið ÍA-Meyja sem eru í 2. sætinu. Afturgöngurnar ætla því sannarlega að ganga aftur upp í 1. deild kvenna á næsta tímabili. Vandséð er að þær nái því markmiði ekki.

Reglurnar fyrir deildina eru þannig að efsta liðið fer upp um deild, það lið sem verður í 2. sæti fer í umspil við 5. sæti 1. deildar um laust sæti þar.

Þá að næstu liðum. ÍR-Skvísur sitja í þriðja sæti með 133,5 stig, eiga leik inni á ÍA-Meyjur en skoðum nánar hér á eftir hvaða möguleikar eru í stöðunni. ÍR-KK er síðan í 4. sæti með 119 stig, sömuleiðis eiga þær leik inni en bilið upp í umspilssæti er orðið of mikið.

KFR-Skutlurnar eru síðan í 5. sæti, ÍR-Mömmur í því 6. og Ösp-Gyðjur í því 7.

Skoðum aðeins leikina sem eftir eru

KFR-Afturgöngurnar eiga eftir að mæta:

  • Ösp-Gyðjum í 19. umferð
  • KFR-Skutlurnar í 20. umferð

Afturgöngurnar ættu því að eiga til þess að gera nokkuð skaplega leiki eftir og í raun bara tryggja efsta sætið.

ÍA-Meyjur eiga eftir að mæta:

  • ÍR-KK í 20. umferð á Skaganum
  • ÍR-Skvísum í 21. umferð

ÍA-Meyjur eru með 18 stiga forskot á næsta lið en það lið á leik inni, skoðum á eftir hvaða möguleikar eru í boði.

ÍR-Skvísur eiga eftir að mæta:

  • ÍR-KK í 19. umferð
  • ÍR-Mömmum í 20. umferð
  • ÍA-Meyjum í 21. umferð

Hér kemur sá spádómur að ef ÍR-Skvísur ná að stilla upp sínu sterkasta liði í alla þessa leiki sem eftir eru, þá er ágætur möguleiki fyrir þær að ná öðru sætinu af ÍA- Meyjum sem þær mæta akkúrat í loka umferðinni svo sú umferð getur orðið ansi spennandi í þessari deild. En þekkjandi Skaga fólk þá eru þær sýnd veiði en alls ekki gefins.

Næst verður tekin fyrir 2. deild karla

Nýjustu fréttirnar