Staðan í deildarkeppni undir lok tímabilsins – 1. deild karla

Facebook
Twitter

Nú eru einungis eftir örfáir leikir í deildarkeppni KLÍ þetta keppnistímabilið og tilvalið að spá í stöðuna, setja upp spádómsgleraugun og skoða hvernig þetta tímabil ætlar að fara.

Lokaumferð deildarkeppninnar verður laugardaginn 18. apríl eftir tvær vikur og þá verður lokahóf sambandsins þá um kvöldið og eru keilarar hvattir til að næla sér í miða og taka þátt í skemmtuninni, fagna verðlaunum sem veitt verða og samgleðjast öðrum – Miðapantanir fyrir lokahófið eru hér.

En þá að deildarkeppninni

Í 1. deild karla í ár eru 11 lið þar sem Þór dróg sig úr keppni í upphafi tímabilsins. Það leiðir af sér yfirsetu hjá öllu liðum en alls á að spila 22. umferðir. Vegna þess finnum við einhvern punkt í dagatalinu til að skoða og meta stöðuna. Finnum þá stöðuna þegar um helmingur liða eru búin að leika 18 leiki  en hin 17 að undanskildu ÍR-KLS sem er með 16 leiki þegar þetta er skoðað. Það er þó eitthvað um leiki í stöðunni eins og hún er tekin fyrir þennan pistil sem eru forspilaðir eða aðrir leikir sem hefur verið frestað og eiga eftir að koma inn.

Hér er keppnin þannig að fjögur efstu liðin fara í úrslitakeppnina, neðsta liðið fellur í 2. deild og liðin í 9. og 10. sæti fara í umspil við 2. sæti í 2. deild um laust sæti næsta tímabil. Það er gert vegna þess að til stendur að fækka liðum aftur í 10 liða deildir.

ÍR-PLS er að stinga af í deildarkeppninni, efstir með 215 stig eftir 18 leiki sem gerir rétt um 12 stig að meðaltali í leik. Í sætum 2 og 3 koma síðan ÍA og ÍR-L með 166 stig og 161. 4. sæti skipa svo að sinni KFR-Lærlingar með 147 stig. ÍR-Þröstur er í 5. sæti eftir 17 leiki með 134 stig.

Á botninum sitja svo KR-A með 45 stig eftir 18 leiki en unglingarnir í ÍR-Land eru í því 10. með 60 stig, KFR-Grænu töffararnir eru í því 9. með 83,5 stig og ÍR-Krókar í 8. með 97 stig.

Við getum skoðað hvaða leiki þessi lið eiga eftir í apríl og byrjum aðeins á að skoða hvort það sé mat á að ÍR-Þrestir geti gert einhverja skráveifu varðandi 4 efstu.

ÍR-Þröstur á eftir að mæta:

  • ÍR-PLS í 18. umferð
  • KFR-Lærlingum í 21. umferð
  • ÍR-A í 22 umferð

Þeir eru því að fara að mæta topp 3 liðunum í síðustu 3 umferðum og verður að teljast harla ólíklegt að þeir nái að breyta stöðunni sér í hag og hafa því hér með tækifæri til að láta pistlahöfund éta hatt sinn.

Lítum þá aðeins niður á við og skoðum frá botni og upp.

KR-A á eftir að mæta:

  • ÍA í 20. umferð upp á Skaga
  • ÍR-A í 21. umferð
  • ÍR-Krókum í 22. umferð.

Ef þeir ná einhverju af stigum í þessum viðureignum þá verða þau fá og því blasir við KR-A að spila í 2. deild næsta tímabil.

ÍR-Land á eftir að mæta:

  • ÍA í 21. umferð upp á Skaga
  • ÍR-L í 20. umferð
  • ÍR-KLS í 22. umferð

Allt erfiðir leikir og þó strákarnir hafi komið mörgum á óvart er nokkuð ljóst að þeir fara í umspilsleikina um að halda sæti í 1. deild eða fara niður í þá 2.

KFR-Grænu töffararnir eiga eftir að mæta:

  • ÍR-Krókum í 20. umferð
  • ÍR-PLS í 21. umferð

Þeir eiga þá yfirsetuna sína eftir og aðeins þessa 2 leiki. Þeir eru núna 13.5 stigum á eftir ÍR-Krókum, eiga þá eftir í næst síðasta leik sínum sem þeir verða þá að vinna 14-0 svona miðað við að eiga síðan PLS eftir, harla ólíklegt að þeir nái að forðast umspilið um að halda sæti.

ÍR-Krókar eiga eftir:

  • KFR-Grænu töffarana í 20. umferð
  • ÍR-KLS í 21. umferð
  • KR-A í 22. umferð

Krókarnir eiga þarna eftir að mæta í tveim viðureignum liðum fyrir neðan sig og verður að teljast líklegt að þeir nái inn það mörgum stigum að þeir tryggi sæti sitt í deildinni fyrir komandi tímabil.

Spádómurinn er því á þá leið að efstu 4 liðin fara í úrslitakeppnina, KR-A fellur og ÍR-Land og KFR-Grænu töffararnir fara í umspil um laust sæti í 1. deild

Eftir er að skoða og meta hvaða lið kemur upp úr 2. deild í þá 1. og hvaða lið væri líklegast til að taka síðasta sætið í deildinni fyrir næsta tímabil. Nánar um það síðar.

Næsti pistill verður þá um 2. deild kvenna.

Nýjustu fréttirnar