Staðan í deildarkeppni undir lok tímabilsins – 1. deild kvenna

Facebook
Twitter

Nú eru einungis eftir örfáir leikir í deildarkeppni KLÍ þetta keppnistímabilið og tilvalið að spá í stöðuna, setja upp spádómsgleraugun og skoða hvernig þetta tímabil ætlar að fara.

Lokaumferð deildarkeppninnar verður laugardaginn 18. apríl eftir tvær vikur og þá verður lokahóf sambandsins þá um kvöldið og eru keilarar hvattir til að næla sér í miða og taka þátt í skemmtuninni, fagna verðlaunum sem veitt verða og samgleðjast öðrum – Miðapantanir fyrir lokahófið eru hér.

En þá að deildarkeppninni

Vegna ójafns fjölda liða í deildum eiga sum lið fleiri leiki eftir en önnur. Í þessum pistli verður fókuserað á 1. deild kvenna.

Spilaðar verða 20 umferðir og eru núna öll lið búin að leika 17 umferðir og einhver eru búin að forspila leiki. Staðan er þannig að KFR-Valkyrjur tróna á toppnum með 180,5 stig og ÍR-TT er þar á eftir í 2. sætinu með 162,5 stig. Í þriðja sæti er svo ÍR-Elding með 99,5 stig þannig að það er engin spurning um hvaða lið fara í úrslitakeppni í 1. deild kvenna, það eru Valkyrjur og TT.

Á botninum eru hins vegar úrslitin hvergi nærri ljós. ÍR-Píurnar sitja neðstar með 84 stig, ÍR-BK er í 9 sæti með 92 stig og munar því bara 8 stigum á. ÍR-VÁ kemur þar næst í 4. sætinu með 95,5 og því aðeins 11,5 stigum frá neðsta sætinu. Loks eru síðan ÍR-Elding í 3. sætinu með 99,5 stig.

ÍR-Píur eiga eftir að mæta:

  • ÍR-BK í 18. umferð
  • ÍR-VÁ í 19. umferð

ÍR-BK á eftir að mæta:

  • ÍR-Píum í 18. umferð
  • KFR-Valkyrjum í 20. umferð (forspilaður leikur)
  • ÍR-Elding í 19. umferð

ÍR-VÁ á eftir að mæta:

  • ÍR-TT í 18. umferð
  • ÍR-Píurnar í 19. umferð
  • ÍR-Elding í 20. umferð

ÍR-Elding á eftir að mæta:

  • KFR-Valkyrjum í 18. umferð
  • ÍR-BK í 19. umferð
  • ÍR-VÁ í 20 umferð

Neðsta liðið fellur beint í 2. deild kvenna en næst neðsta liðið fer í umspilsleik við 2. sæti í 2. deild um laust sæti.

Eins og segir er ljóst hvaða lið fara í úrslitakeppnina en vandi er að spá um hvaða lið fellur og hvaða lið fer í umspilið um að halda sæti sínu. Ef rýnt er í tölurnar þá eru neðstu 4 liðin með afskaplega svipað liðsmeðaltal:

  • ÍR-Elding með 155,07
  • ÍR-VÁ með 156,16
  • ÍR-BK með 155,4
  • ÍR-Píurnar með 151,99

ÍR-Elding, ÍR-BK og ÍR-VÁ eiga eftir að mæta toppliðunum, Elding og BK Valkyrjum og VÁ TT. Síðan eru þetta innbyrgðis viðureignir sem eru eftir hjá þessum liðum. Ef við tökum þá leiki inn ætti að vera víst að þessi lið nái einhverjum stigum í hús og auka þar með enn bilið á ÍR- Píurnar.

Það verður því að teljast líklegt að ÍR-Píur nái ekki að komast í umspilið í ár og fara því niður um deild. Engu að síður hafa þær átt gott mót, ungt lið á ferðinni þarna með alla framtíðina opna fyrir höndum sér.

Þá kemur að vandamáli spádómsins um það hvaða lið endar í næst neðsta sætinu og fer í umspilið. Mat höfundar er það að ef ÍR-Elding spilar án Guðbjargar Hörpu (Bubba) í þessum leikjum sem eftir er, enda þær í næst neðsta sætinu og fara því í umspilið. Ef Bubba mætir í leikina munar það um minna fyrir þær og þá endar ÍR -BK í umspili.

Næst verður tekin fyrir 1. deild karla.

Nýjustu fréttirnar