Í dag lauk undankeppni karla og milliriðli karla og kvenna í Íslandsmóti einstaklinga.
Gunnar Þór Ágeirsson sigraði undankeppnina í morgun en hann lék leikina 8 á 1844 pinnum sem þýðir meðaltal upp á 231 pinna.
Milliriðill karla og kvenna var svo spilaður í kvöld. Þar mættu 16 efstu karlar og 12 efstu konur eftir undankeppnina til leiks og spiluðu aðra 8 leiki. Olivia Clara Steinunn Lindén er efst kvenna eftir forkeppnina. Hún spilaði leikina 16 á 3031 pinna (189 meðaltal). Gunnar Þór Ásgeirsson er efstur karla. Hann spilaði leikina 16 á 3709 pinna (232 meðaltal).
Klukkan 17 mánudaginn 23. mars verða spilað til úrslita. Þá keppa efstu 8 keppendurnir úr hvorum flokki og verður þá leikið maður á mann. Að því loknu verða úrslit mótsins en að þessu sinni verða þau í beinni útsendingu á RÚV2 og hefst útsending kl. 19:00 – Keilarar eru þá hvattir til að fjölmenna upp í Keiluhöll til að fylgjast með útsendingunni þar.
Streymt er frá mótinu á YouTube rás KLÍ
Skor úr forkeppni karla:

Skor úr milliriðli karla:

Skor úr milliriðli kvenna:




