Í morgun var leikin forkeppni á Íslandsmóti einstaklinga 2026 í kvennaflokki. Það var Linda Hrönn Magnúsdóttir úr ÍR sem varð í efsta sæti en hún lék leikina 8 á 1.611 pinnum eða 201 í meðaltal. Í öðru sæti varð síðan núverandi Íslandsmeistari Olivia Clara Steinunn Lindén einnig úr ÍR en hún lék sína leiki á 1.536 eða 192 í meðaltal. Loks varð það Hafdís Pála Jónasdóttir úr KFR sem varð í 3. sætinu með 1.513 pinna eða 189 í meðaltal.
Í fyrramálið leika karlarnir forkeppnina og hefst keppnin kl. 08:00 í Keiluhöllinni Egilshöll. Að lokum verður svo á morgun kl. 18:00 leikinn milliriðill mótsins en þá keppa 12 efstu konurnar og 16 efstu karlarnir eftir forkeppnina og spila þau aðra 8 leiki. Skor fylgir keppanda áfram í mótinu.
Að loknum milliriðli annað kvöld verða undanúrslit leikin á mánudaginn kl. 17:00 en þá keppa efstu 8 keppendurnir úr hvorum flokki og verður þá leikið maður á mann. Að því loknu verða úrslit mótsins en að þessu sinni verða þau í beinni útsendingu á RÚV2 og hefst útsending kl. 19:00 – Keilarar eru þá hvattir til að fjölmenna upp í Keiluhöll til að fylgjast með útsendingunni þar.
Streymt er frá mótinu á YouTube rás KLÍ
Staðan eftir forkeppni dagsins:



