Um helgina lauk keppni á World Youth Championship en mótið fór fram í Helsingborg Svíþjóð. Eins og fram kom náði Mikael Aron Vilhelmsson inn í 16 manna úrslit með því að verða í 11. sæti forkeppninnar með 219,0 í meðaltal. Olivia Clara Steinun Linen varð í 28. sæti með því að spila leikina 18 í forkeppninni með 174,5 í meðaltal.
Í 16 manna úrslitum var keppnin þannig að allir léku við alla í Round Robin og voru gefin auka stig fyrir sigur gegn andstæðingi. Þar gekk okkar manni ekki alveg eins vel og endaði Mikael í 14. sæti með 207,1 í meðaltal. Engu að síður stórglæsilegur árangur hjá honum.
Allar upplýsingar um mótið má finna á vefsíðu þess.