Fréttatilkynning vegna fjölmiðlaumfjöllunar um öldungalandslið Íslands

Facebook
Twitter

Undanfarnar vikur hafa birst nokkrar fréttir á netmiðlum þar sem Keilusamband Íslands (KLÍ) er sakað um óeðlilega stjórnarhætti og spillingu. Umræðan kemur til vegna ásakana ríkjandi Íslandsmeistara öldunga í karlaflokki um að gengið hafi verið fram hjá honum við val í landslið öldunga sem keppa mun fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti öldunga í ágúst.

Stjórn Keilusambands Íslands vill af því tilefni árétta að þær ásakanir sem settar hafa verið fram eiga ekki við rök að styðjast. Hvorki framkvæmda- og íþróttastjóri sambandsins né stjórn KLÍ annast val á landsliðum heldur er sú ákvörðun í höndum landsliðsþjálfara eins og hefðbundið er við val í landslið Íslands í fjölmörgum íþróttagreinum.

Í tilefni af umfjölluninni tók stjórn til skoðunar hvort að farið hefði verið eftir lögum, reglum og afreksstefnu KLÍ við valið og er það niðurstaða stjórnar að svo sé og því ekkert óeðlilegt við landsliðsvalið. Rétt er að taka fram að Íslandsmeistaratitill, hvort sem er í unglinga-, fullorðins- eða öldungaflokki, veitir samkvæmt reglum KLÍ aldrei sjálfkrafa þátttökurétt í landsliðum Íslands í keilu heldur eru fjölmargir þættir teknir til skoðunar. Í því sambandi er mikilvægt að hafa í huga að keppni á mótum eins og því sem um ræðir er ekki eingöngu keppt í einstaklingskeppni heldur einnig tvímenningi og liðakeppni. Því er mikilvægt að við val keppenda í landslið sé horft til ýmissa sjónarmiða svo sem að skapa góða liðsheild, ástundun keppenda í mótum og æfingum undanfarna mánuði og að keppendur fylgi siðareglum KLÍ í hvívetna, rétt eins og á við um aðrar liðsíþróttir.

Stjórn KLÍ hefur skilning á því að val í landslið Íslands í keilu geti verið umdeilt líkt og oft er raunin í öðrum íþróttagreinum. Það er því ekki óeðlilegt að spurningar vakni um landsliðsval og sjálfsagt að skoða hvort að þau mál séu ekki í góðum farvegi.

Keilusamband Íslands fagnar umræðu og umfjöllun um keiluíþróttina en mikilvægt er að hún fari fram á málefnalegum grunni og á grundvelli réttra upplýsinga. Sambandið hvetur fjölmiðla til að sýna íþróttinni áfram áhuga og er boðið og búið að veita upplýsingar um starf sambandsins sem og afrek okkar frábærra íþróttafólks bæði hérlendis og erlendis.

Nýjustu fréttirnar