Olíuburðir

Hér má finna olíuburði fyrir keppnistímabilið 2026 til 2027 – Uppfært: 17. júlí 2026

Íslandsmót liða

Meistarakeppni KLÍ

Bikarkeppni liða

Meistarakeppni ungmenna

Íslandsmót unglinga

Utandeild KLÍ

Íslandsmót einstaklinga 2027

  • ECC 2026

Íslandsmót einstaklinga 2027 með forgjöf

  • ECC 2026

Íslandsmót para 2026

Íslandsmót í tvímenningi 2025 – Dual burður

Íslandsmót öldunga 50+ 2027

Reglur um hvaða olíuburðir eru á mótum KLÍ

Tækninefnd KLÍ kemur með tillögu til stjórnar KLÍ um olíuburði komandi keppnistímabils. Leitast er við að hafa olíuburðina sem fjölbreyttasta fyrir öll mót.

Reglur um val á olíuburði í deildarkeppni allra deilda

Boðið er upp á þrjá olíuburði fyrir deildarkeppni, stuttan, miðlungs og langan olíuburð. Sjálfgefinn burður, ef heimalið velur ekki, er alltaf miðlungs olíuburðurinn.

Heimalið getur valið milli þessara þriggja olíuburða. Ósk um olíuburð þarf að berast Mótanefnd fyrir kl. 22:00 miðvikudagskvöldið fyrir næstu leikviku sé leikdagur mánudagur eða þriðjudagur. Fyrir leikdaga sem eru um helgi þarf beiðnin að berast Mótanefnd fyrir kl. 22:00 á mánudagskvöldi fyrir komandi helgi. Senda þarf beiðni á netfangið oliuburdur[at]kli.is

Dæmi um olíuburð

 4,Sunset Strip – 42 fe40