Hafþór Harðarson ÍR tekur nú fyrstur Íslendinga þátt í PBA mótaröð í keilu (PBA World Series of Bowling) sem fram fer í Las Vegas dagana 2. – 11. nóvember. Hafþór keppir þar við 240 af bestu keilurum í heiminum, frá 17 þjóðum. Keppnin hefst laugardaginn  3. nóvember á Alka Seltzer Plus Cold Cheetah Championship mótinu og keppir Hafþór í A riðli sem byrjar kl. 7:30 að  staðartíma eða kl. 14:30 að íslenskum tíma.
Mótaröðin í heild samanstendur af 4 einstökum mótum sem spiluð eru fjóra daga í röð, 3. – 6. nóvember, í 4 mismunandi olíuburðum. Keppendur spila 8 leiki í hverju móti fyrir sig og komast 16 efstu keppendurnir að því loknu áfram í úrslit  mótsins. Efstu 24 keppendurnir að loknum öllum fjórum mótunum (32 leikir) komast síðan áfram í PBA World Championship úrslitakeppnina sem fer fram 7. og 8. nóvember. Að lokum keppa efstu 4 keppendurnir úr hverju móti til úrslita sem sýnd verða í beinni útsendingu á ESPN sjónvarpsstöðinni laugardaginn 10. og sunnudaginn 11. nóvember.
Dagskrá mótaraðarinnar(stytt útgáfa):
 Æfingar, föstudagur 2. nóvember
 Alka Seltzer Plus Cold Cheetah Championship, laugardagur 3. nóvember
 PBA Viper Championship, sunnudagur 4. nóvember
 PBA Chameleon Championship, mánudagur 5. nóvember
 Bowlers Journal PBA Scorpion Championship, þriðjudagur 6. nóvember
 PBA World Championship match play, miðvikudagur 7. nóvember
 PBA World Championship round robin match play, fimmtudagur 8. nóvember
 Úrslitakeppni allra móta (TV Finals), laugardagur 10. og sunnudagur 11. nóvember
Sjá nánar dagskrá mótsins og einnig umfjöllun um mótið á PBA.com og Bowling digital.com
  
				


