Karlalið ÍA og kvennalið ÍR-Píurnar eru Bikarmeistarar KLÍ 2026 en leikið var til úrslita í gærkvöldi í Keiluhöllinni Egilshöll.
ÍA keppti við lið KFR-Lærlinga og vann sína viðureign 3 – 0. ÍA byrjaði heldur betur vel í viðureigninni og spilaði 720 gegn 587 en úrslit í leik tvö réðust bara á síðasta kasti í 10. ramma þar sem ÍA hafði betur, 617 gegn 612. Skagamenn silgdu þessu nokkuð þægilega í höfn í þriðja leiknum og unnu þar 621 gegn 519. Samtals skor þeirra var 1.958 gegn 1.718.
Hjá konunum var skrifaður merkilegur kafli í Bikarsögu KLÍ
Þar áttust við hið þrautreynda lið ÍR-TT gegn unglingsstúlkunum ÍR-Píurnar. Fyrir fram hefðu flestir búist við að ÍR-TT tæki þetta og þær byrjuðu ansi vel. Sigruðu fyrsta leikinn 539 gegn 435 þar sem ÍR-Píurnar lokuðu ekki nógu vel.
Í bikar skiptir það ekki öllu máli því það er þá næstu leikur. Og hann unnu ÍR-Píurnar 508 gegn 503 og því jafnt, 1 – 1. Í þriðja leiknum náðu ÍR-TT að knýja fram sigur að lokum, 491 gegn 478. ÍR-Píurnar sóttu á í lok þess leiks og hófu þá fjórða og síðasta leikinn að krafti og náðu fljótt um 60 pinna forskoti. Það fór svo að ÍR-Píurnar sigruðu leikinn 538 gegn 478 og því var staðan orðin jöfn, 2 – 2 og því varð úr skorið um titilinn í bráðabana.
Þar byrjuðu ÍR-Píurnar á því að fella allar og fljótlega voru þær komnar með 30 pinna forskot sem ekki var látið af hendi.
Það var því ljóst að ÍR-Píurnar klófestu Bikartitilinn og ná ætla að þær séu yngsta kvennaliðið til að hampa svo stórum titli í liðakeppni á Íslandi. Stelpurnar eru fæddar 2011 og 2012. Þær sýna því enn og aftur að framtíð íslenskrar kvennakeilu er björt.
Sjá má stöðu Bikarkeppninnar á síðu þeirrar keppni.
Streymt var frá úrslitunum og má sjá upptökuna hér.
ÍA
KFR-Lærlingar og ÍA
ÍR-Píurnar
ÍR-Píurnar og ÍR-TT








