Staðan í deildarkeppni undir lok tímabilsins – 3. deild karla

Facebook
Twitter

Nú eru einungis eftir örfáir leikir í deildarkeppni KLÍ þetta keppnistímabilið og tilvalið að spá í stöðuna, setja upp spádómsgleraugun og skoða hvernig þetta tímabil ætlar að fara.

Lokaumferð deildarkeppninnar verður laugardaginn 18. apríl eftir rúma viku og þá verður lokahóf sambandsins þá um kvöldið og eru keilarar hvattir til að næla sér í miða og taka þátt í skemmtuninni, fagna verðlaunum sem veitt verða og samgleðjast öðrum – Miðapantanir fyrir lokahófið eru hér.

En þá að deildarkeppninni

Alls eru 12 lið í þriðju deildinni þetta tímabilið. Vegna fyrirhugaðrar fækkunar í 1. og 2. deild næsta tímabils verður kapallinn áhugaverði í lok tímabilsins þannig að efsta liðið fær sæti í 2. deil en næst efsta sætið í deildinni fer í umspils-kapalinn við liðið í næst neðsta sætis 2. deildar og svo áfram ef liðið sigrar þá viðureign.

Skoðum hvernig staðan er eftir að flest liðin þarna eru komin með 20 leiki undir belti, 4 lið hafa þó leikið 21 leik. Og hér eru spennandi hlutir að gerast.

Í fyrsta sæti er hið gamalgróna lið ÍR-NAS með 202,5 stig eftir 20 leiki, það gerir rétt rúmlega 10 stig að meðaltali í umferð. Nokkuð gott. En aðeins 0,5 stigum á eftir þeim eru strákarnir úr Keiluhöllinni ÍR-Splitturnar þrjár og 2,5 stigum þar á eftir í þriðja sæti er ÍR-Keila.is Síðan eru 18 stig í 4. sætið sem ÍR-T vermir

Leikirnir sem eftir eru – Ja, hvur skollinn!

ÍR-NAS á eftir að mæta:

  • ÍR-Splitturnar þrjár í 21. umferð
  • Ösp-Ásar í 22. umferð

Hér verður nánast úrslitaleikur mögulega í næstu umferð þegar efstu 2 liðin mætast. Síðasti leikur þeirra ætti að vera á pari við meðaltals stigasöfnun þeirra svo þarna er að duga en alls ekki drepast á móti Splittunum.

ÍR-Splitturnar þrjár eiga eftir að mæta:

  • Téðum ÍR-NAS í 21. umferð
  • ÍR-Pjakkar í 22. umferð

Höfum farið yfir viðureignina sem er do or dy í 21. umferð fyrir bæði lið en svo eiga þeir Pjakkana í lokaumferðinni en Pjakkar eru í neðri hluta deildarinnar en geta alveg reitt stig og stig af þessum liðum. Splitturnar þurfa því að passa sig á sjálfum sér (splittunum) og loka sem mest þær geta.

ÍR-Keila.is á eftir að mæta:

  • ÍR-Pjakkar í 21. umferð
  • ÍR-Gaurar í 22. umferð

Sko. Hér er alveg möguleiki á að bæði hirða efsta sætið í deildinni og poppa beint upp í þá 2. eða koma sér í annað sætið og í umspil. Það munar ekki nema 5 stigum á þeim og efsta sætinu og tvær umferðir eftir! ÍR-Keila.is hefur á að skipa þrautseigum körlum sem hafa alveg náð niður pinnunum þegar mest á reynir svo það má ekki útiloka þá.

 

Nú þarf heldur betur að hrista kristalskúluna vel og mikið og sjá í gegn um kófið í henni til að spá fyrir um lokastöðuna.

Spáin hljóðar svo að ÍR-NAS kemst upp í 2. deild með um 2 stiga forskot á ÍR-Keila.is sem nær öðru sætinu en aðeins 0,5 stigum á undan ÍR-Splittunum þrem.

 

Næst verður smá uppgjör á þessum spádómum deildarkeppninnar við það sem þið keilarar gerið í lokaumferðinni en svo spámaður örvænti ekki um of á mögulegri útreið sinni, þá mun hann líka skoða hvað keilarar spáðu fyrir í upphafi deildarkeppninnar síðastliðið haust.

Sjáumst á brautunum og svo í lokahófinu.

Nýjustu fréttirnar