Í dag náðu þeir félagar þeim frábæra árangri að næla sér í brons í tvímenningi á Evrópumóti ungmenna 2026 sem er haldið í Berlín. Eins og kunnugt er þá er tvímenningur ein af keppnum svona móta og spiluðu þeir Ásgeir Karl og Tristan Máni í fjórða og síðasta riðli tvímenninskeppninnar. Enduð þeir þar í öðru sæti með 2.705 pinna eða 225,4 í meðaltal. Voru þeir á eftir Dönunum Tobias Kastfelt Bryde og Oscar Emil Porskrog sem spiluðu leikina 6 á 2.936 eða 244,7.
Fór það svo að í heildarkeppninni voru þeir félagar eins og áður segir í 4. sæti af alls 54 tvímenningum og mættu þeir danska tvímenninginum í undanúrslitum sem sigruðu forkeppnina.
Ásgeir Karl og Tristan Máni töpuðu undanúrslitunum naumlega þar sem úrslitin réðust í síðasta kasti Ásgeirs í 10. ramma þar sem hann fékk erfiða 8 glennu. Ef hann hefði náð skaplegra skoti, feykt og 9 í bónuskasti hefðu þeir komist í úrslitaleikinn. Grátlega nálægt voru þeir en samt stórkostlegt afrek að komast í úrslitin. Undanúrslitin fóru 449 hjá Dönum gegn 438 hjá okkar mönnum.
Fór það því svo að Danir léku til úrslita við Úkraínu sem vann hina viðureignina og eru því Evrópumeistarar í tvímenningi U18 í ár.
Til hamingju Ásgeir Karl, Tristan Máni og þjálfarar þeirra Mattias Möller og Katrín Fjóla.
Þetta er annað sinn sem Ísland vinnur brons á EYC móti en fyrir tveim árum tók Mikael Aron Vilhelmsson bron í Masters keppninni en árið Arnar Davíð Jónsson vann gull í Masterskeppninni árið 2011.




