Forkeppni lokið á Íslandsmóti öldunga

Facebook
Twitter

Í dag lauk forkeppni á Íslandsmóti öldunga (50+). Þátttaka var mjög góð í ár en 38 keppendur, 16 konur og 22 karlar, tóku þátt í forkeppninni. 

Sex karlar og sex konur komust áfram í undanúrslit en þau verða spiluð annað kvöld, mánudaginn 30. mars kl: 19. Úrslit eru spiluð strax í kjölfarið og mun KLÍ streyma frá undanúrslitum og úrslitum á youtube síðu sambandsins.

Þórarinn Már Þorbjörnsson leiðir karlaflokkinn og Guðný Gunnarsdóttir leiðir kvennaflokkinn en ljóst er að keppnin um um að hreppa þrjú efstu sætin og leika til úrslita verður spennandi og hörð á morgun.

Undankeppni karla:

Undankeppni kvenna:

Nýjustu fréttirnar