Evrópumót ungmenna 2026 að hefjast

Facebook
Twitter

Í dag hefst Evrópumót ungmenna U18 en mótið er að þessi sinni haldið í Berlín og stendur mótið yfir til sunnudagsins 5. apríl.

Ísland sendir fullt hús einstaklinga til keppni eða 4 stúlkur og 4 pilta. Þau eru:

Stúlkur

  • Alexandra Erla Guðjónsdóttir
  • Bára Líf Gunnarsdóttir
  • Julia Sigrún Filippa Lindén
  • Særós Erla Jóhönnudóttir

Piltar

  • Ásgeir Karl Gústafsson
  • Svavar Steinn Guðjónsson
  • Tristan Máni Nínuson
  • Þorgils Lárus Davíðsson

Þjálfarar liðsins eru þau:

  • Mattias Möller
  • Katrín Fjóla Bragadóttir

Dagskrá Evrópumóts unglinga

Í dag hefst mótið á þjálfarafundi sem og fyrstu æfingum í salnum og í olíuburðinum sem er valinn í mótið.

Á morgun mánudaginn 30. mars hefst svo einstaklingskeppnin sem lýkur svo á þriðjudaginn með seinni leikjablokkinni og úrslitum.

Miðvikudag og fimmtudag fer svo fram tvímenningur og á föstudag og laugardag verður liðakeppni þar sem allir 4 þátttakendurnir spila í liðakeppninni.

Eins og fyrr segir lýkur mótinu sunnudaginn 5. apríl en þá verður Masterskeppni þeirra 16 efstu pilta og stúlkna úr öllu mótinu.

Hægt er að sjá allar upplýsingar um mótið á vefsíðu þess svo sem skor, dagskrána, hlekk í lifandi streymi og fleira.

Nýjustu fréttirnar