Þessa dagana fer fram eitt af risamótunum í Bandaríkjunum, USBC Masters sem er haldið af United States Bowling Congress , USBC, bandaríska keilusambandið. Þetta mót er eitt af Major mótum þar í landi þar sem allir helstu keppendur í heiminum reyna að komast að en fáir fá þátttökurétt.
Arnar Davíð byrjaði ótrúlega vel í mótinu. Forkeppnin er spiluð þannig að þrjár fimm leikja blokkir eru spilaðar. Í fyrstu blokkinni varð Arnar Davíð hvorki meira né minna í 6. sæti af 390 keppendum mótsins en hann var með 241,2 í meðaltal eftir leikina 5, alls 1.206 pinnar. Var hann í ráshóp A sem spilaði í ferskri olíu.
Næsta dag spilaði hann í ráshóp B sem spilar í olíunni sem var borin á fyrir A hópinn, en þá er olían sem eftir er á brautunum kölluð Burn burður. Arnar byrjaði sæmilega þar en lenti síðan á erfiðu brautarpari og átti slæman leik. Hann náði sé ekki alveg á strik eftir það en fór inn í síðasta daginn á ágætis skori samt sem áður en var kominn niður í 73. sæti með 217 í meðaltal. Sæmilegt skor klárlega.
Lokadaginn var Arnar í ráshóp C sem spilaði í ferskri olíu. Eitthvað sat dagurinn á undan í honum því hann náði sér aldrei almennilega upp og átti ekki góðan leik fyrr en í 5. og síðasta þegar hann spilaði 244.
Lokastaðan hjá honum var 177. sæti af 390 með 208,3 í meðaltal sem er samt frábær árangur hjá íslenskum keilara.
Arnar segir að hann hafi í raun verið sjálfum sér verstur þegar hann lítur til baka á mótið en gengur þó nokkuð sáttur frá mótinu.
Sjá má allar upplýsingar um mótið á vefsíðu þess.
Mótið heldur áfram um helgina og lýkur á sunnudaginn með úrslitaleikjum sem verða í beinni útsendingu á The CW Network.




