Íslandsmóti einstaklinga lauk í gær og urðu þau Marika Katarina E. Lönnroth (KFR) og Gunnar Þór Ásgeirsson (ÍR) Íslandsmeistarar. Guðbjörg Harpa Sigurðardóttir (ÍR) varð í öðru sæti og Olivia Clara Steinunn Lindén (ÍR) í því þriðja í kvennaflokki. Í karlaflokki varð Hafþór Harðarsson (ÍR) í öðru sæti og Mikael Aron Vilhelmsson (ÍR) í því þriðja.
Úrslitin voru í beinni útsendingu á RÚV2 og þakkar Keilusambandið RÚV sérstaklega fyrir gott samstarf og faglega útsendingu.
Jafnframt þakkar Keilusambandið forseta ÍSÍ, Willum Þór Þórssyni, fyrir að komuna á úrslitin.

Mótið var einstaklega jafnt og spennandi í ár. Ekki munaði nema einum pinna á þriðja og fjórða sæti eftir undanúrslit í kvennaflokki og einungis 14 pinnum á þriðja og fjórða sæti í karlaflokki.
Þá var einnig ánægjulegt að sjá hvað unga kynslóðin stóð sig vel á mótinu og jafnframt skemmtilegt að segja frá því að yngsti keppandinn í undanúrslitum í kvennaflokki er 14 ára en sá elsti 66 ára. Enn og aftur sannar keiluíþróttin sig sem íþrótt fyrir allan aldur.




