Stjórn KLÍ hefur samþykkt tillögu Tækninefndar um bann við notkun á keilukúlum sem ekki standast 78D Hardness reglu. Bannið tekur strax gildi eftir því sem getið er um hér fyrir neðan. Keilarar eru hvattir til að kynna sér vel þessa reglu.
Eins og flestum er kunnugt samþykkti USBC í Bandaríkjunum breyttar reglur er varða þessi mál í upphafi árs. Nú nýverið tók Alþjóða keilusambandið – International Bowling Federation upp þessa reglu fyrir öll heimsmeistaramót og í framhaldinu tók Evrópska keilusambandið – European Bowling Federation upp reglurnar í Evrópumótum (EC mót).
Bann við notkun á keilukúlunum nær yfir þessi mót á Íslandi og tekur gildi strax:
- Íslandsmót einstaklinga – karlar og konur
- Íslandsmót öldunga
- Íslandsmót para
- Íslandmót í tvímenningi
Bannið mun taka gildi 2027 fyrir Íslandsmót unglinga en mótið í ár, um næstu helgi, er undanskilið þar sem þetta bann verður ekki á EYC um komandi páska.
Bannið nær því ekki yfir þessi mót:
- Deildarkeppni liða
- Bikarkeppni liða
- Íslandsmót einstaklinga með forgjöf
- Meistarakeppni ungmenna
Félög sem halda mót er í frjálst val sett hvort þessi regla muni ná yfir þau mót en með sannarlegum hætti þarf að tilkynna keilurum slíkt.
Aukagöt í keilukúlum
Samhliða umfjöllun um þessi mál var endurmetin fyrri ákvörðun Tækninefndar um aukagöt í kúlum. Er þá átt við um gömlu hliðargötin eða þumalgat ef keilari kastar kúlu án þess að þumalfingur sé í kúlu, tveggja handa sem dæmi.
- Engin breyting verður gerð á þeirri reglu þannig að þær kúlur sem voru boraðar með t.d. hliðargati fyrir 2020 eru enn leyfilegar í innlendum mótum.
- Ekki er leyfilegt að bora aukagat á kúlur í dag og telst þumalgat sem aukagat ef einungis eru notaðir tveir fingur við kast keilukúlu.
- Ekki er heimilt að skipta á milli með sömu kúlu með og án þumals.
Keilarar eru hvattir til að kynna sér vel hvaða kúlur eru leyfðar og má sjá bannlista hér.
Viðurlög við notkun á ólöglegum keilukúlum
Viðurlög við notkun á ólöglegum kúlum eru þau að skor leikmanns telst ekki með, núll skor. Reglugerð sem við á um þessi mál er í vinnslu og verður birt á næstu dögum á vefnum.
Stjórn KLÍ
Tækninefnd KLÍ

