Íslandsmót einstaklinga 2026 verður haldið dagana 21.mars til 23.mars í Keiluhöllinni Egilshöll.
Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur miðvikudaginn 18. mars kl 18:00
Skráning hér
Olíuburður í mótinu er:
Reglugerð um mótið má nálgast hér
Forkeppni laugardaginn 21. mars (KONUR) og sunnudaginn 12. mars (KARLAR) kl 8:00
Spilaðir eru 8 leikir í einni 8 leikja blokk.
Verð í forkeppni kr. 18.000 kr.
Allir keppendur leika 8 leiki í senn og 16 keppendur komast í milliriðil. Skorið úr forkeppninni fylgir í milliriðil. Hámarksfjöldi keppenda er 44. Forgangur skráningar fer eftir allsherjarmeðaltali þar til vika er í mót en þá fer um forgang skráningar eftir hvenær skráning í mót berst.
Milliriðill
16 efstu keppendurnir spila 8 leiki, 8 efstu keppendurnir komast í undanúrslit og fylgir skorið úr forkeppninni og milliriðlinum.
Milliriðill sunnudaginn 22. mars kl 18:00
Spilaðir eru 8 leikir.
Efstu 8 karlar og 8 konur halda áfram í undanúrslit.
Undanúrslit mánudaginn 23. mars kl 17:00
Undanúrslit:
Allir keppa við alla, einfalda umferð.
Á stigin fyrir leikina bætast bónusstig þannig:
Fyrir sigur í leik fást 20 bónusstig
fyrir jafntefli í leik fást 10 bónusstig
Að loknum þessum leikjum fara 3 efstu keppendurnir í úrslit.
Úrslit: að loknum undanúrslitum
Að þessu sinni verða úrslitin sýnd í beinni útsendingu á RÚV og verður byrjað á að sýna frá úrslitum kvenna og síðan úrslit karla.
Spiluð eru úrslit milli þriggja efstu manna/kvenna sem leika allir einn leik á sama setti
Allir leika einn leik og fellur úr leik sá sem hefur lægsta skorið.
Eftir eru tveir keppendur og leika þeir einn leik til úrslita og fær sigurvegarinn titilinn Íslandsmeistari einstaklinga.
Sé einhversstaðar í úrslitum jafnir leikir sem verða til þess að ekki sé hægt að skera úr um hvort keppandi detti út eða vinni leik skal útkljá leikinn með því að leikmenn kasta einu kasti og sá vinnur sem fellir flestar keilur.
Ef enn er jafnt skal endurtaka þetta þar til úrslit liggja fyrir.
Mótanefnd KLÍ


