Marika Lönnroth er Íslandsmeistari kvenna með forgjöf

Facebook
Twitter

Marika Lönnroth frá Keilufélagi Reykjavíkur er Íslandsmeistari einstaklinga með forgjöf í kvennaflokki eftir vægast sagt æsispennandi lokaviðureign þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í tíunda ramma. Í öðru sæti varð Særós Erla Jóhönnudóttir frá ÍR og í þriðja sæti varð Halldóra Í. Ingvarsdóttir einnig frá ÍR. 

Mótið var vel sótt í ár og keppnin æsispennandi og jöfn. KLÍ var með streymi frá bæði undanúrslitum og úrslitum á youtube síðu KLÍ og þar má nálgast upptöku af keppninni. 

Um næstu helgi fer fram keppni karla og stendur skráning enn yfir.

 

Nýjustu fréttirnar