Þessa dagana er Arnar Davíð Jónsson staddur í Texas, Bandaríkjunum. Þar ytra freistar hann þess að komast inn á atvinnumannatúrinn, PBA. Arnar hóf leik í úrtökumóti fyrir 2026 PBA Players Championship þar sem leikið var í gær og spilaðir voru 7 leikir. Arnar lenti þar í 24. sæti með 215 í meðaltal en 14 efstu komust áfram í því móti og þurfti 221 í meðaltal til þess. Sjá má upplýsingar um mótið hér.
Það verður þó ekki langt að bíða í að Arnar keppi á næsta móti en hann þarf alltaf að taka þátt í þessum úrtökumótum fyrir hvert mót, Pre-Tournament Qualifier (PTQ). Arnar stefnir á að spila í öllum úrtökumótum nema fyrir; World Series, USBC Master og New York Classic. Hægt er að sjá dagskrá mótanna hér og komast í úrslit og upplýsingar um hvert þeirra.
Við óskum Arnari Davíð góðs gengis þarna úti. Draumurinn lifir – Að komast inn á PBA túrinn sjálfan. Það væri eitthvað.




