Forkeppni Íslandsmóts kvenna með forgjöf 2026 er lokið – Ljóst e hverjar komast áfram í milliriðil

Facebook
Twitter

Núna i morgun lauk forkeppninni á Íslandsmóti einstaklinga 2026 með forgjöf í kvennaflokki. Alls hófu keppni 28 konur og komust efstu 16 áfram í milliriðilinn sem verður leikinn annaðkvöld í Keiluhöllinni Egilshöll og hefst keppni skv. dagskrá kl. 19

Í efsta sæti eftir forkeppnina er Halldóra Íris Ingvarsdóttir úr ÍR með 2.621 pinna eftir 12 leikina eða 218,4 í meðaltal. Önnur er Særós Erla Jóhönnudóttir, einnig úr ÍR með 2.610 pinna eða 217,5 í meðaltal og þriðja er Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR með 2.591 pinna eða 215,9 í meðaltal. Sjá má leikina og stöður í mynd hér fyrir neðan.

Á morgun verður sem fyrr segir leikið í milliriðli og þá keppa 16 efstu konurnar og leika 6 leikja seríu. Eftir hana verður þá keppendum fækkað í 8 og leika þær efstu á þriðjudaginn í svokölluðu Round Robin formati eða maður á mann keppni. Að því loknu verða úrslit þriggja efstu sem leika um titilinn Íslandsmeistari kvenna með forgjöf 2026.

Áætlað er að streyma frá bæði milliriðli og undanúrslitum / úrslitum og verður streymið á YouTube síðu KLÍ. Hefst þá streymið ef allt gengur eftir kl. 19:00 báða dagana.

Forgjafakeppnin er núna haldin sitthvora helgina þar sem þátttaka síðustu ár hefur verið það mikil að þörf er á meira rými fyrir báða kynjaflokkana. Um næstu helgi fer þá fram keppni karla og stendur skráning enn yfir.

 

Nýjustu fréttirnar