Brons og master á Evrópumóti öldunga 65+

Facebook
Twitter

Fyrsta Evrópumóti öldunga 65+ lauk í dag en Ísland sendi sterkt lið til keppni í bæði karla og kvennaflokki. 

Guðný Gunnarsdóttir átti frábært mót en hún nældi sér í bronsverðlaun í einstaklingskeppni og komst einnig í masterskeppni þeirra 16 efstu þar sem hún vann sína fyrstu viðureign en datt úr keppni í 8 kvenna úrslitum. Þá varð kvennalið Íslands í 6. sæti liðakeppninnar. 

Heilt yfir var frammistaða íslensku keppendanna góð og sannar enn og aftur að keiluíþróttina er hægt að stunda með afar góðum árangri óháð aldri. Allar nánari upplýsingar um úrslit og árangur íslensku keppendanna má finna á heimasíðu mótsins. 

Nýjustu fréttirnar