Á ársþingi KLÍ, þann 24. maí sl. var því beint til stjórnar KLÍ að taka til skoðunar breytingar á reglum um vensl. Boðað var til opins félagsfundar þann 16. júní til að ræða málefnið ítarlegar og þakkar stjórn KLÍ öllum þeim sem gáfu sér tíma til að mæta á fundinn og taka þátt í umræðum.
Stjórn KLÍ hefur í kjölfarið samþykkt uppfærðar reglur um vensl sem finna má í 10. – 14. gr. reglugerðar KLÍ um liðakeppnir – Almennt/vensl. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Í 10. gr. er nú tiltekið að það lið sem leikamaður er skráður í teljist aðallið hans en liðið sem venslað er við teljist venslalið.
- Í 12. gr. er tiltekið að heimilt sé að nýta fleiri en einn venslamann í hverjum leik innan viðureignar í 9 viðureignum. Eftir það má einungis nýta einn venslamann í hverjum leik innan viðureignar. Á þessi regla eingöngu við innan kyns.
- Skv. 12. gr. er ekki lengur heimilt að nýta venslasamninga í umspili milli deilda. Á þessi regla eingöngu við innan kyns.
- Skv. 14. gr. gilda einstaklingsbundir venslasamningar kvenna við karlalið nú eingöngu um deildarkeppni en ekki bikarkeppni.
Við uppfærslu á reglunum horfði stjórn til mikilvægis þess að takmarka ekki um of þann sveigjanleika sem reglur um vensl bjóða upp á. Sérstaklega mikilvægt sé að reglurnar veiti ungum leikmönnum tækifæri til að spreyta sig við fjölbreyttar aðstæður og að reglurnar styðji við það markmið að sem sjaldnast þurfi að fresta eða færa viðureignir. Þá leggur stjórn áfram ríka áherslu á að styðja sérstaklega við konur í keilu með því að veita þeim sem fjölbreyttust tækifæri til keppni.