Það er skammt stórra högga á milli hjá okkur í keilunni. Þessa dagana fer fram í Helsinki, European Senior Bowling Campionship en það mót er nú haldið í 32. sinn. Mótið er eins og nafnið gefur til kynna ætlað öldungum í keilu sem er 50+ aldurinn. Til leiks mæta keilarar frá 25 löndum og héldu 16 íslenskir keppendur ytra til keppnis.
Keppt verður í einstaklings-, tvímennings- og þrímenningskeppni á mótinu sem og Masterskeppni í lokin þar sem meðaltalshæstu eintaklingarnir mætast. Mótið hófst í gær og stendur til 28. júní. Sjá má dagskrá mótsins hér og á vefsíðu mótsins má finna allar upplýsingar um það m.a. úrslit og fleira.
Þátttakendur Íslands eru:
- Bára Ágústsdóttir ÍR
- Halldór Guðmundsson ÍR
- Valdemar Guðmundsson ÍR
- Guðný Gunnarsdóttir ÍR
- Herdís Gunnarsdóttir ÍR
- Halldóra Íris Ingvarsdóttir ÍR
- Sigríður Klemensdóttir ÍR
- Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR
- Björgvin Magnússon ÍR
- Hreinn Rafnar Magnússon ÍR
- Helga Sigurðardóttir KFR
- Laufey Sigurðardóttir ÍR
- Bjarki Sigurðsson ÍR
- Þórarinn Már Þorbrjönsson ÍR
- Kristján Þórðarson ÍR
- Guðbjörg Lind Valdemarsdóttir ÍR