EM karlalandsliða hefst 5. júní

Facebook
Twitter

Evrópumót karlalandsliða fer fram dagana 5. júní til þess 15. og verður að þessu sinni haldið í Álaborg,  Danmörku. Á vef mótsins má nálgast allar upplýsingar um það svo sem dagskrá móts, stöðu keppenda, olíuburð sem að þessu sinni verður langur burður 46 fet +/- 1 fet og fleiri upplýsingar. Samkvæmt venju verður olíuburðurinn ekki gefinn út fyrr en á fundi landsliðsþjálfara í upphafi móts. Verður spennandi að sjá hvernig okkar strákar standa sig í burðinum.

Landslið Íslands að þessu sinni er skipað eftirfarandi leikmönnum:

  • Arnar Davíð Jónsson IS Göta/ KFR
  • Guðlaugur Valgeirsson Höganäs BC/ KFR
  • Gunnar Þór Ásgeirsson ÍR
  • Hafþór Harðarson ÍR
  • Ísak Birkir Sævarsson Höganäs BC/ ÍA
  • Mikael Aron Vilhelmsson KFR

Þjálfari er Skúli Freyr Sigurðsson

Mótið hefst eins og segir fimmtudaginn 5. júní þegar opinberar æfingar fara fram og fá þá leikmenn fyrst að prófa sig áfram í olíuburðinum. Dagskrá mótsins má sjá hér.

Nýjustu fréttirnar