Heimsmeistaramót ungmenna 2025

Facebook
Twitter

Í sumar fer fram heimsmeistaramót fyrir ungmenni undir 21 árs aldri. Mótið fer fram í Helsingborg í Svíþjóð dagana 15.-22. júní. Á þessu móti má hver þjóð senda einn strák og eina stelpu til að keppa. Keppt er einungis í einstaklingskeppni en það eru spilaðir 18 leikir í þremur sex leikja hollum og fara 16 áfram eftir þessa 18 leiki.

Ísland er með og hefur Skúli Freyr Sigurðsson valið tvö ungmenni til að taka þátt og það eru nýkrýndir Íslandsmeistarar einstaklinga, þau Mikael Aron Vilhelmsson og Olivia Clara Steinunn Lindén.

Það er hægt að finna allt mögulegt um mótið hérna:

Nýjustu fréttirnar