Valgerður Rún Benediktsdóttir ÍR er nýr formaður Keilusambands Íslands, KLÍ

Facebook
Twitter

Um síðustu helgi fór fram 32. þing KLÍ en að þessu sinni var það ÍA sem bauð þingheim velkominn upp á Skaga. Hefðbundin þingstörf fóru fram samkvæmt lögum sambandsins og sem fyrr var Hafsteinn Pálsson, meðstjórnandi í framkvæmdastjórnar ÍSÍ, kjörinn þingforseti. Þetta var í 30. sinn sem Hafsteinn stýrði þingi Keilusambandsins og kann KLÍ honum miklar þakkir fyrir hans aðstoð til sambandsins á ársþingum sem og í öðrum málum.

Fyrir utan hefðbundin þingmál voru nokkur mál lögð fyrir þingið til umræðu svo sem tillögur að breytingu á reglugerðum og er farið nánar út í þær umræður sem sköpuðust í þingskýrslu en gögn þingins má nálgast hér.

Fyrir lá að Jóna Guðrún formaður sambandsins mundi stíga frá borði á þinginu þar sem hún og fjölskylda hennar er að flytja erlendis á komandi vikum. Því þurfti að kjósa nýjan formann sambandsins á þinginu og var Valgerður Rún Benediktsdóttir úr ÍR ein í framboði til og því sjálfkjörin formaður til tveggja ára.

Auk þess lá fyrir að kjósa þurfti einn stjórnamann til eins árs og var Guðmundur Sigurðsson ÍA einn í framboði þar. Samkvæmt lögum þarf að kjósa tvo stjórnarmenn til tveggja ára á hverju þingi og voru þeir Ársæll Erlingsson ÍA og Jóhann Ágúst Jóhannsson ÍR einir í framboði og því sjálfkjörnir. Fyrir í stjórn er síðan Gunnar Þór Ásgeirsson ÍR.

Varamenn í stjórn voru síðan kjörin þau:

  1. varamaður: Helga Hákonardóttir Ösp
  2. varamaður: Katrín Fjóla Bragadóttir KFR
  3. varamaður: Böðvar Már Böðvarsson ÍR

Ársskýrsla, þinggerð og önnur gögn þingsins má nálgast hér.

Nýjustu fréttirnar