Í gærkvöldi fóru fram úrslitaleikirnir í bikarkeppni liða 2025. Leikið var í Keiluhöllinni Egilshöll og áttust við í kvennaflokki lið ÍR-TT og KFR-Afturgöngurnar. Viðureignin fór 3 – 0 fyrir ÍR-TT og eru því ÍR-TT Bikarmeistarar liða 2025 í kvennaflokki.
Í karlaflokki áttust við ÍR-PLS og ÍR-KLS, viðureignin endaði 3-0 fyrir ÍR-KLS og eru þeir því bikarmeistarar karla liða 2025.
Liðin í öðru sæti voru ÍR-PLS og KFR-Afturgöngurnar.