Svavar Steinn Guðjónsson KFR og Hafdís Eva L Pétursdóttir ÍR Íslandsmeistarar einstaklinga 2022 með forgjöf

Facebook
Twitter

Nú dag lauk úrslitum á Íslandsmóti einstaklinga 2022 með forgjöf. Voru það þau Svavar Steinn Guðjónsson úr KFR og Hafdís Eva Laufdal Pétursdóttir úr ÍR sem sigruðu mótið í ár. Dagurinn hófst á því að undanúrslit 6 efstu úr hvorum flokki voru leikin en spilað var í svokölluðu Round Robin þ.e. allir við alla. Eftir það fóru 3 efstu úr hvorum flokki í úrslitaviðureignirnar og spilaður var einn leikur og féll sá sem lægsta skor var með út. Að lokum var hreinn úrslitaleikur milli þeirra tveggja sem eftir voru.

Mótið hófst með forkeppni á laugardag fyrir viku og voru þá leiknir 6 leikir. Áfram var haldið með forkeppnina sunnudaginn 20. febrúar en veðrið setti strik í reikninginn og varð að fresta milliriðlinum sem átti að fara fram á mánudaginn og hann því leikinn þriðjudaginn 22. febrúar.  Undanúrslit og úrslit fóru síðan fram eins og segir í dag.

Svavar Steinn sigraði Arnór Inga Bjarkason úr ÍR í úrslitum með 235 gegn 226 en Matthías Leó Sigurðsson úr ÍA varð í 3. sæti hjá körlunum.

Hafdís Eva sigraði hana Elvu Rós Hannesdóttur úr ÍR með 256 gegn 169 í úrslitum en Halldóra Íris Ingvarsdóttir úr ÍR varð í 3. sætinu.

Úrslit dagsins urðu annars þessi.

Karlar

  Íslandsmót karla með forgjöf 2022            
  Leiknir leikir alls: 23              
Sæti Nafn Félag Forgjöf Flutt Skor Auka- pinnar Sam- tals Meðal- tal Mism. í 3. sæti
1 Svavar Steinn Guðjónsson KFR 80 4.140 1.106 80 5.326 228,1 150
2 Matthías Leó Sigurðsson KFA 48 4.256 1.042 20 5.318 230,3 142
3 Arnór Ingi Bjarkason ÍR 56 4.002 1.074 100 5.176 220,7 0
4 Ásgeir Karl Gústafsson KFR 36 3.971 1.135 60 5.166 222,0 -10
5 Daníel Ingi Gottskálksson ÍR 35 3.944 1.068 40 5.052 217,9 -124
6 Unnar Óli Þórsson ÍR 63 3.936 320 0 4.256 185,0 -920

Konur

  Íslandsmót kvenna með forgjöf 2022            
    Leiknir leikir alls:   23          
Sæti Nafn Félag Forgjöf Flutt Skor Auka- pinnar Sam- tals Meðal- tal Mism. í 2. sæti
1 Elva Rós Hannesdóttir ÍR 45 3.903 1.095 40 5.038 217,3 123
2 Halldóra Í. Ingvarsdóttir ÍR 53 3.839 1.041 80 4.960 212,2 45
3 Hafdís Eva Laufdal Pétursdóttir ÍR 46 3.884 991 40 4.915 212,0 0
4 Margrét Björg Jónsdóttir ÍR 45 3.768 1.064 80 4.912 210,1 -3
5 Helga Ósk Freysdóttir KFR 41 3.794 1.050 60 4.904 210,6 -11
6 Anna Kristín Óladóttir ÍR 56 3.690 966 0 4.656 202,4 -259

Hafdís Eva og Svavar Steinn sigurvegarar mótsins

Svavar Steinn Guðjónsson KFR

Hafdís Eva Laufdal Pétursdóttir ÍR

Efstur 3 hjá körlum, frá vinstri: Arnór Ingi Bjarkason ÍR, Svavar Steinn Guðjónsson KFR og Matthías Leó Sigurðsson ÍA

Efstu 3 hjá konum, frá vinstri: Elva Rós Hannesdóttir ÍR, Hafdís Eva Laufdal Pétursdóttir ÍR og Hallóra Í Ingvarsdóttir ÍR

Myndir frá Guðjóni Júl KFR

Nýjustu fréttirnar