Í kvöld, mánudagskvöldið 1. febrúar verður leikið í 1. deild kvenna og 3. deild karla. Þar sem við erum að hámarka fólksfjölda m.v. sóttvarnarreglur í Keiluhöllinni fyrir svæði 2 og 3 þá getum við dreift okkur pínulítið um húsið. Því er búið að uppfæra brautarskipan fyrir kvöldið.
Vert er þú að ítreka góðar sóttvarnarreglur:
- Vertu með grímu þegar þú mætir í hús og komdu þér beint á settið sem þú spilar
 - Hafðu með þér drykkjarföng og eitthvað að drekka að heiman – Óheimilt er að samnýta þ.h. búnað í Keiluhöllinni
 - Ekki vera að fara á milli setta, haltu þig við þitt sett
 - Lúft High Five á alla í kring um þig, engar snertingar
 - Aðeins fyrirliði eða fulltrúi liðs fer í afgreiðslu til að skrá inn lið, laga skor, skipta inn leikmanni o.sv.fr.
 - Þegar leikur er búinn gengur þú frá, setur upp grímu og við sjáumst seinna
 
Leikir kvöldsins – Drögum tjöld fyrir milli setta þar sem það er hægt
- Brautir 7 – 8 ÍR-Land gegn Ösp-Ásar
 - Brautir 9 – 10 ÍR-Keila.is gegn Ösp-Goðar
 - Brautir 13 – 14 KFR-Afturgöngurnar gegn ÍR-SK
 - Brautir 15 – 16 KFR-Ásynjur gegn ÍR-Eldingu
 - Brautir 17 – 18 ÍR-Buff gegn ÍR-Píunum
 - Brautir 19 – 20 ÍR-TT gegn KFR-Valkyrjum
 
				


