Bjarni Sveinbjörnsson lést að morgni 10. janúar 68 ára að aldri. Bjarni stundaði keilu frá upphafi hennar á Íslandi og var einn af forustumönnum íþróttarinnar alla tíð. Hann sá um landslið Íslands á upphafs árum keilunnar og fór í margar ferðir með liðið. Hann sat í stjórn KFR í fjölda mörg ár og sá um unglingastarf félagsins. Bjarna var veitt silfurmerki Keilufélagsins fyrir störf sín á 30 ára afmæli félagsins sl. haust. Hann lék lengstum með KFR – Þröstum. Stjórn Keilusambands Íslands og félagar úr keilunni senda fjölskyldu og aðstandendum Bjarna innilegar samúðarkveðjur.

Landslið Íslands fyrir Evrópumót ungmenna U18, EYC2026 valið
Landsliðsnefnd KLÍ hefur fengið þau Mattias Möller frá Svíþjóð og



