Hafþór Harðarson keppir á PBA mótum

Facebook
Twitter

Hafþór Harðarson ÍR tekur nú fyrstur Íslendinga þátt í PBA mótaröð í keilu (PBA World Series of Bowling) sem fram fer í Las Vegas dagana 2. – 11. nóvember. Hafþór keppir þar við 240 af bestu keilurum í heiminum, frá 17 þjóðum. Keppnin hefst laugardaginn 3. nóvember á Alka Seltzer Plus Cold Cheetah Championship mótinu og keppir Hafþór í A riðli sem byrjar kl. 7:30 að staðartíma eða kl. 14:30 að íslenskum tíma.

Mótaröðin í heild samanstendur af 4 einstökum mótum sem spiluð eru fjóra daga í röð, 3. – 6. nóvember, í 4 mismunandi olíuburðum. Keppendur spila 8 leiki í hverju móti fyrir sig og komast 16 efstu keppendurnir að því loknu áfram í úrslit  mótsins. Efstu 24 keppendurnir að loknum öllum fjórum mótunum (32 leikir) komast síðan áfram í PBA World Championship úrslitakeppnina sem fer fram 7. og 8. nóvember. Að lokum keppa efstu 4 keppendurnir úr hverju móti til úrslita sem sýnd verða í beinni útsendingu á ESPN sjónvarpsstöðinni laugardaginn 10. og sunnudaginn 11. nóvember.

Dagskrá mótaraðarinnar(stytt útgáfa):
Æfingar, föstudagur 2. nóvember
Alka Seltzer Plus Cold Cheetah Championship, laugardagur 3. nóvember
PBA Viper Championship, sunnudagur 4. nóvember
PBA Chameleon Championship, mánudagur 5. nóvember
Bowlers Journal PBA Scorpion Championship, þriðjudagur 6. nóvember
PBA World Championship match play, miðvikudagur 7. nóvember
PBA World Championship round robin match play, fimmtudagur 8. nóvember
Úrslitakeppni allra móta (TV Finals), laugardagur 10. og sunnudagur 11. nóvember

Sjá nánar dagskrá mótsins og einnig umfjöllun um mótið á PBA.com og Bowling digital.com
 

Nýjustu fréttirnar