Kvennalandslið Íslands í keilu er á leið á EM kvenna í sem fer fram í Vínarborg, Austurríki dagana 8. – 19. júní 2016. Á mótinu taka þátt 25 þjóðir og 132 keppendur. Efstu 15 þjóðirnar munu ávinna sér rétt til þátttöku á HM kvenna sem verður haldið á næsta ári í Kuwait.
Íslenska liðið skipa eftirfarandi:
- Ástrós Pétursdóttir ÍR
- Bergþóra Rós Ólafsdóttir ÍR
- Dagný Edda Þórisdóttir Keilufélag Reykjavíkur (KFR)
- Hafdís Pála Jónasdóttir KFR
- Katrín Fjóla Bragadóttir KFR
- Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR
Með liðinu fara Theódóra Ólafsdóttir þjálfari og Hafþór Harðarsson aðstoðarþjálfari.
Þess má geta að Valgeir Guðbjartsson verður mótsstjóri og eftirlitsmaður Keilusambands Evrópu á mótinu.
Keilusamband Íslands hefur einnig valið karlaliðið sem keppir á EM karla í sem fer fram 18. – 29. ágúst í Brussel, Belgíu.
Á þessu móti verða 217 keppendur frá 37 þjóðum en þetta mót er jafnframt úrtökumót fyrir HM í keilu sem fer fram í Kuwait á næsta ári en 15 efstu liðin frá Evrópu vinna sér inn þátttökurétt á HM.
Karlaliðið skipa:
- Arnar Davíð Jónsson KFR
- Bjarni Páll Jakobsson ÍR
- Guðlaugur Valgeirsson KFR
- Gústaf Smári Björnsson KFR
- Skúli Freyr Sigurðsson KFR
- Stefán Claessen ÍR
Með liðinu fara þeir Ásgrímur Helgi Einarsson og Guðjón Júlíusson.