Evrópumót unglinga EYC 2014 – Seinni dagur liðakeppni

Facebook
Twitter

Í dag var seinni keppnisdagur liðakeppni á Evrópumóti unglinga. Strákarnir enduðu í 21. sæti í keppninni með samtals 4073. Leikir strákanna í dag voru: Guðmundur Ingi Jónsson 172, 180 og 181, samtals 533. Hlynur Örn Ómarsson 124, 169, 173, samtals 466. Aron Fannar Benteinsson 152, 138 og 168, samtals 458. Andri Freyr Jónsson, 196, 150 og 186, samtals 532. Samtals voru leikir liðsins 644, 637, 708, samtals 1989 í dag.

Stelpunum gekk ágætlega í dag og voru allar að spila á eða yfir sínu meðaltali og Jóhanna og Natalía héldu áfram að bæta sig persónulega í tveimur og þremur leikjum. Katrín Fjóla Bragadóttir spilaði 156, 192 og 181, samtals 529. Jóhanna Guðjónsdóttir 163, 185, 187, samtals 535. Natalía Jónsdóttir 158, 166, 183, samtals 507

Finnar sigruðu Dani í úrslitum í liðakeppni pilta og Hollendingar og Svíar urðu í 3. sæti. Rússar sigruðu England í úrsitum í liðakeppni stúlkna og Svíar og Þjóðverjar höfnuðu í 3. sæti.

Staðan er þá þannig í einstaklingskeppninni (All-Event að Katrín Fjóla Bragadóttir er í 35. sæti með samtals 2156 eða 179,7 að meðaltali. Jóhanna Ósk Guðjónsdóttir er í 52. sæti með samtals 1950 eða 162,5 að meðaltali og Natalía G. Jónsdóttir er í 57. sæti með samtals 1869 og 155,8 að meðaltali.

Hlynur Örn Ómarsson  188   127   169   124   169   173   950  158,3
Gudmundur Ingi Jónsson  169   191   197   172   180   181   1090  181,7

Aron Fannar Benteinsson  166   198   162   152   138   168   984  164
Andri Freyr Jonsson   167   182   168   196   150   186   1049  174,8
   690   698   696   644   637   708   4073  169,7

Katrín Fjóla Bragadóttir ISL  159  180  191  156  192  181 1059
Jóhanna Gudjónsdottir ISL  155  147  155  163  185  187  992
Natalía Jónsdóttir ISL  124  173  158  158  166  183  962

35    Katrín Fjóla Bragadóttir Iceland 1097 1059 0 2156 -102  179,7 12/18
52    Jóhanna Gudjónsdottir Iceland 958 992 0 1950 -308  162,5 12/18
57    Natalía Jónsdóttir Iceland 907 962 0 1869 -389  155,8 12/18

Finnar unnu Dani í úrslitum liðakeppni pilta með 836 á móti 710. Finland,  Lauri Sipilä, 193,  Henry Laine, 206, Tatu Lehtonen, 213, Tomas Käyhkö, 224. Denmark,  Rasmus Bering, 165,  Markus Bergendorff, 150,  Nichlas Christensen, 190,  Martin Øager, 205. Í 3. sæti voru Hollendingar og Svíar. Í úrslitum liðakeppni stúlkna unnu Rússar Englendinga með 855 á móti 782.  Rússland, Ksenia Kulikova, 191,  Maria Koshel, 187,  Maria Bulanova, 278,  Ksenia Apanyakina, 199. England,  Keira Reay, 204,  Rebecca Daly, 206,  Emily Allen, 190,  Franchesca Plewis, 182. Í 3. sæti voru Svíþjóð og Þýskaland.

Fylgist með keppninni á heimasíðu mótsins og Facebook síðunni
 

Nýjustu fréttirnar