RIG 2014 – Forkeppni early bird

Facebook
Twitter

Keppni í fyrsta riðli forkeppni keilumóts Reykjavíkurleikanna RIG 2014, eða svokölluðum early bird riðli, fór fram í Keiluhöllinni í Egilshöll í dag. Alda Harðardóttir KFR er í efsta sæti með samtals 1.335 að loknum þessum fyrstu 6 leikjum, en hún spilaði 1.287 eða 222,5 að meðaltali í leik í dag og hefur 138 pinna forskot á Björn Birgisson KR sem er í 2. sæti með 1.197 pinna. Þorleifur Jón Hreiðarsson KR er í 3. sæti með 1.191 pinna eins og Ásgrímur Helgi Einarsson KFR sem er í 4. sæti. Alls tók 21 keppandi þátt í þessum fyrsta riðl, sjá stöðuna í keppninni.

Hægt er að horfa á upptöku Bowling Iceland TV1 af keppninni frá brautum 11 og 12 með því að smella hér.

Keilumót Reykjavíkurleikanna, RIG 2014 fer fram í Keiluhöllinni í Egilshöll. Fyrsti riðill í forkeppni mótsins (early bird) fer fram laugardaginn 18. janúar kl. 9:00, en aðrir riðlar í forkeppninni eru föstudaginn 24. janúar kl. 17:30 og laugardaginn 26. janúar kl. 9:00 og 13:00. Keppni í milliriðli og úrslitakeppni fer síðan fram sunnudaginn 26. janúar og verður bein útsending frá úrslitunum á mbl.is. Skráning í riðlana í forkeppninni er á netinu og lýkur sólarhring fyrir keppni í hverjum riðli. Verð í forkeppninni er 4.500 kr í fyrsta riðilinn, en 5.500 kr í aðra riðla. Olíuburður í mótinu er 2013 USBC Women’s Championships – Reno 40 fet. Sjá auglýsingu og reglugerð fyrir RIG mótið.

Mótið er jafnframt 2. umferð AMF World Cup mótaraðarinnar, en sigurvegara í karla- og kvennaflokki á mótaröðinni ávinna sér keppnisrétt á Qubica AMF World Cup 2014. Í úrslitum mótaraðarinnar eiga keppnisrétt 10 stigahæstu keppendurnir úr öllum þremur AMF mótum vetrarins. Sjá stöðuna eftir 1. umferð.

Nú hafa fjórir erlendir keppendur boðað komu sína á leikana, en þeir eru Svíarnir Robert Andersson og ensku landsliðskonurnar Lisa John og Joanne Allsebrook. Þess má geta að Lisa er silfurhafi frá síðasta Evrópumóti landsmeistara sem fram fór í Bratislava og JoJó var í landsliði Englendinga á The World Championships í Las Vegas í Ágúst. Mikael Kanold er sænskur landsliðsmaður og hefur einu sinni áður tekið þátt í RIG. Robert Andersson þarf vart að kynna svo oft hefur hann glatt augu okkar á undaförnum árum. Þetta eru sterkir keppendur sem verður gaman að fylgjast með í keppni við bestu íslensku keilarana.

Sjá einnig heimasíðu keiludeildar ÍR, Facebook síðu keiludeildar ÍR, heimasíðu RIG, Facebook síðu RIG, síðu Reykjavíkurleikanna á mbl.is og upplýsingar um beinar útsendingar frá RIG 2014

Bein útsending verður frá riðlum forkeppninnar og keppni í milliriðli á síðunni Bowling Iceland TV1 og þar verður einnig hægt að horfa á upptökur frá keppninni. Úrslitakeppnin verður einnig sýnd beint með lýsingu á SportTV

 

Nýjustu fréttirnar